Eitt af gildum Veitna er heiðarleiki. Heiðarleiki snýr að því hvernig við komum fram við viðskiptavini og hvert við annað, hvernig við störfum og hvernig við tryggjum gegnsæi í rekstri. Siðareglur okkar byggja á gildinu heiðarleika. Siðareglurnar leiðbeina okkur þegar siðferðileg álitamál koma upp í starfi. Þær hjálpa okkur að láta heiðarleika, virðingu og jafnrétti einkenna öll okkar samskipti hvort sem er við viðskiptavini, samstarfsfólk, stjórn, verktaka eða aðra hagsmunaaðila. Þær eru ekki tæmandi og leysa okkur ekki undan þeirri ábyrgð að reiða okkur á eigin samvisku þegar siðferðileg álitamál ber upp.
Upplýsingagjöf og trúnaður
Hagsmunaárekstrar
Við virðum jafnrétti og önnur mannréttindi
[Siðareglur yfirfarnar og samþykktar af stjórn þann 19.04.2023]