Policies

Below is a list of all our policies.

Starfskjarastefna

Starfskjarastefna þessi er sett í samræmi við eigendastefnu Orkuveitunnar frá 2014, en þar segir í grein 6.4.:

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur skal setja fyrirtækinu starfskjarastefnu sem felur í sér hófsemi varðandi laun- og starfskjör starfsfólks. Laun stjórnenda skulu standast samanburð við sambærileg störf, þó að teknu tilliti til þess að fyrirtækið er í eigu opinberra aðila. Launakjör stjórnenda og annars starfsliðs Orkuveitu Reykjavíkur skulu ekki vera leiðandi á vinnumarkaði.

Stefnan miðar að því að starfskjör innan samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur séu samkeppnishæf svo að hún geti ráðið og haldið í hæft starfsfólk til að standa vörð um hlutverk fyrirtækisins.

Starfskjarastefnan hefur langtímahagsmuni samstæðunnar að leiðarljósi, og skal stuðla að stöðugleika í rekstri og uppbyggingu þekkingar.

Á grundvelli framangreindra ákvæða byggir starfskjarastefna Veitna.

1. Starfskjör

Starfskjör skulu vera samkeppnishæf við kjör í sambærilegum félögum og að teknu tilliti til ákvæðis 6.4.3 í eigendastefnu OR. Jafnræði og gagnsæi skal haft til hliðsjónar við ákvörðun launa og sambærileg laun skulu greidd fyrir sambærilegt vinnuframlag og árangur. Kynbundinn launamunur má ekki vera til staðar.

2. Stjórn félagsins

Utanaðkomandi stjórnarmönnum er greidd föst mánaðarleg þóknun í samræmi við ákvörðun aðalfundar. Forstjóri OR, handhafi eigendavalds í félaginu, leggur fram tillögu til aðalfundar þess um þóknun stjórnarmanna. Áður skal hann upplýsa stjórn móðurfélagsins um tillöguna til að unnt sé að staðfesta samræmi hennar við starfskjarastefnu móðurfélagsins. Stjórnarlaun skuli ekki vera leiðandi en þó samkeppnishæf að teknu tilliti til þess hvernig eignarhaldi í OR og félaginu er háttað.

3. Framkvæmdastjóri

Stjórn ræður framkvæmdastjóra og ákveður starfskjör hans og endurskoðar árlega eftir því sem við á og með hliðsjón af 1. gr. starfskjarastefnunnar.

4. Annað starfsfólk

Framkvæmdastjóri ræður þá stjórnendur, sem heyra beint undir hann í skipuriti. Hann ákvarðar laun þeirra og endur­­skoðar þau reglulega. Stjórnendur ráða annað starfsfólk og ákvarða laun þeirra í samráði við fram­kvæmda­stjóra.

5. Starfslok

Ekki skal gera samninga við stjórnendur, sem fela í sér starfslokagreiðslur umfram skyldur félagsins samkvæmt lögum og kjarasamningum, nema með samþykki stjórnar.

6. Upplýsingagjöf

Starfskjarastefnan skal vera aðgengileg á heimasíðu Orkuveitu Reykjavíkur. Gera skal árlega grein fyrir þóknun stjórnar og framkvæmdastjóra í ársreikningi fyrirtækisins. Einnig skulu koma fram greiðslur vegna stjórnarsetu eða annarra ytri verkefna sem tengjast beint starfi viðkomandi í félaginu.

7. Eftirfylgni, endurskoðun og samþykkt starfskjarastefnu

Starfskjarastefna félagsins er endurskoðuð reglulega til samræmis við starfskjarastefnu Orkuveitu Reykjavíkur.

[Stefna yfirfarin og samþykkt á stjórnarfundi 22.04.2020]