Gátlistar fyrir umsóknir heimlagna

Mikilvægt er að skila aðeins þeim upplýsingum og gögnum sem beðið er um, öll frávik frá því tefja umsóknarferlið. Ekki er heimilt að skila heilum teikningasettum. 

Heimlagnaumsókn - Vatnsveita

Upplýsingar og gögn sem skal skila við umsókn.

Mikilvægt er að skila aðeins þeim upplýsingum og gögnum sem beðið er um, öll frávik frá því tefja umsóknarferlið. Ekki er heimilt að skila heilum teikningasettum.

Almennt

Með öllum umsóknum þurfa að fylgja almennar upplýsingar um afhendingarstað heimlagnar og greiðanda.

Skila skal eftirfarandi upplýsingum með öllum umsóknum:

  • Heimilisfang verkstaðar
  • Póstnúmer
  • Landsnúmer – matshluti*
  • Kennitala greiðanda
  • Netfang greiðanda
  • Nafn tengiliðs
  • Netfang tengiliðs
  • Símanúmer tengiliðs
  • Tegund mannvirkis

*ATH hægt er að leita í fasteignaskrá í umsókn og þá fyllist sjálfkrafa út, heimilisfang, póstnúmer og landsnúmer – matshluti.

Ný heimæð

Upplýsingar:

  • Stærð heimæðar - sjá viðmiðunartöflu
  • Fjöldi fyrirhugaðra sölumæla
  • Er vatnsúðarakerfi í mannvirkinu
    • Á neysluvatn og vatnsúðarakerfi að vera sameiginlegt í einni heimæð?
    • Áætluð vatnsþörf (l/m) – þarf aðeins fyrir mjög stórar heimæðar, 100mm og stærri
  • Upplýsingar hvort vinnuskúr sé á verkstað sem þurfi að aftengja

Gögn:

  • Afstöðumynd sem sýnir hvar heimlagnir koma inn í hús
  • Grunn- og sniðmynd sem sýnir hvar inntaksrými er í húsi, hvar og hvernig heimlagnir koma inn í það
  • Þjónustubeiðni pípulagningameistara

Stækkun á heimæð

Við stækkun á heimæð þarf ávallt að leggja nýja heimæð og því fylgir stækkun sama ferli og ný heimæð

Upplýsingar:

  • Stærð heimæðar - sjá viðmiðunartöflu
  • Fjöldi fyrirhugaðra sölumæla
  • Er vatnsúðarakerfi í mannvirkinu?
    • Á neysluvatn og vatnsúðarkerfi að vera sameiginlegt í einni heimæð?
    • Áætluð vatnsþörf (l/m) – þarf aðeins fyrir mjög stórar heimæðar, 100mm og stærri
  • Upplýsingar hvort vinnuskúr sé á verkstað sem þurfi að aftengja

Gögn:

  • Afstöðumynd sem sýnir hvar heimlagnir koma inn í hús
  • Grunn- og sniðmynd sem sýnir hvar inntaksrými er í húsi, hvar og hvernig heimlagnir koma inn í það
  • Þjónustubeiðni pípulagningameistara

Bráðabirgðaheimæð – Vinnuheimæð

Fyrir bráðabirgðaheimæð þarf að staðsetja vinnuskúrinn á viðkomandi lóð götumegin, þeim megin sem stofnlagnir liggja, við byggingarreit og ekki ofan á væntanlegum lagnaleiðum. Sé óljóst hvaðan endanlegar heimlagnir munu liggja skal ráðfæra sig við Veitur um staðsetningu vinnuskúrs.

Upplýsingar:

  • Stærð heimæðar - sjá viðmiðunartöflu
  • Fjöldi fyrirhugaðar sölumæla
  • Áætluð vatnsþörf (l/m) – þarf aðeins fyrir mjög stórar heimæðar, 100mm og stærri.

Gögn:

  • Staðsetningu vinnuskúrs á lóð
  • Hægt er að skila inn teikningu eða merkja á korti í umsókn
  • Afstöðumynd sem sýnir hvar heimlagnir koma inn í vinnuskúr
  • Þjónustubeiðni pípulagningameistara

Breyting á heimæð

Við breytingu á heimæð er átt við færslu á heimæð eða grind, endurnýjun á grind, fjölgun eða fækkun mæla og allar aðrar breytingar sem tengjast heimæð eða mælingu nema stækkun.

Upplýsingar:

  • Upplýsingar um breytingu sem óskað er eftir

Gögn:

  • Þjónustubeiðni pípulagningameistara
  • Vegna færslu á heimæð
  • Afstöðumynd sem sýnir hvar heimlagnir koma inn í hús
  • Grunn- og sniðmynd sem sýnir hvar inntaksrými er í húsi, hvar og hvernig heimlagnir koma inn í það

Aftenging á heimæð

Einungis er tekið við umsóknum um varanlega aftengingu frá húseiganda.

Hvernig getum við aðstoðað þig?