
„Ef vindáttinn hefði verið önnur hefðu vatnsból höfuðborgarbúa verið í hættu en þau eru þarna skammt frá,“ segir Brynja Ragnarsdóttir forstöðukona Vatnsmiðla hjá Veitum um sinueldinn við Elliðavatn.
„Svona atburðir eru grafalvarlegir. Vatnsbólin okkar fyrir allt höfuðborgarsvæðið eru þarna rétt hjá og geta brunar sem þessir mengað þau auðveldlega. Þótt mannvirki sleppi þá geta mengunarefni af eldinum skolast niður í drykkjarvatnið okkar. Það þarf ekki mikið til, þarna er t.d fólk að grilla og öll umgengni skapar hættu á svæðinu, hvort sem það er viljandi eða óviljandi. Bruninn minnir okkur óþægilega mikið á hversu mikilvægt það er að vernda þessa ómissandi innviði og taka það alvarlega.
Hún segir að Veitur leggi áherslu á varnir í kringum vatnsbólin til þess að auka áfallaþol vatnsbólanna. Sinueldar eru ekki bara alvarlegir einir og sér heldur er umferðin sem þeir skapa einnig hættuleg. „Öll umgengni skapar áhættu og slökkviliðið er að sjálfsögðu meðvitað um að það sé að störfum nálægt vatnsverndarsvæði. Slökkviliðið noti til að mynda eingöngu hreint vatn til að slökkva eldinn. En það geta orðið óhöpp í kringum bifreiðar og búnað í tengslum við slökkvistarfið þannig að allt í allt er áhættan mikil, ekki bara af eldinum.
Þurfum að fá umboð til að vernda ómissandi innviði
„Í raun var vindáttin heppni og við viljum ekki reka okkur á heppni. Veitur eiga og reka stærstu ómissandi innviði landsins og það er á okkar ábyrgð að þetta sé í lagi. Þess vegna þurfum við líka að hafa umboð til athafna til þess að geta sett upp forvarnir hratt og örugglega án þess að festast í flókinni stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga. Ég vil líka þakka slökkviliðinu gott samstarf og mikla upplýsingagjöf til Veitna á krítískum tíma í brunanum“, segir Brynja Ragnarsdóttir.
Sinubruninn teygði sig í átt að vatnsbólum Veitna en það skapaðist sem betur fer ekki raunveruleg hætta. Veitur munu áfram skoða með hvaða hætti vörnum verði best komið fyrir við vatnsbólin til þess að auka viðnámsþrótt.
Sterk áminning um að efla varnir við vatnsból höfuðborgarbúa og vernda ómissandi innviði.

Nú er loðnuvertíðin fram undan á Akranesi með tilheyrandi aukningu á vatnsnotkun. Í ár kemur vertíðin hins vegar inn í óvenju langa þurrkatíð, sem gerir vatnsbúskap bæjarins viðkvæmari en ella.