
Veitur fengu í gær viðurkenningu Jafnréttisvogarinnar, Jafnvægismerkið, fyrir árangur í að jafna kynjahlutföll í efsta lagi stjórnunar.
Fjölbreytni og inngilding eru mikilvægir þættir í starfsemi Veitna og við höfum hlotið Jafnvægismerkið árlega frá árinu 2022.
Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna, tók við viðurkenningunni á fjölmennri athöfn í gær.
„Við vitum að það er ekki nóg að setja stefnu um jafnrétti, það þarf að framkvæma jafnrétti markvisst og það höfum við gert. Ég er stolt af þessum árangri og það skiptir máli að fá viðurkenningu fyrir það sem vel hefur gengið. Það er þó enn verk að vinna og við höldum okkur við efnið. Áfram gakk.“ segir Sólrún.
Móðurfélag Veitna, Orkuveitan, er samstarfsaðili Jafnréttisvogarinnar og undirritaði nýverið þriggja ára samstarfssamning sem hefur það markmið að stuðla að auknu kynjajafnvægi í íslensku atvinnulífi. Dótturfélögin Carbfix og Ljósleiðarinn hlutu einnig Jafnvægismerkið.
