Fólk hvatt til að fara spar­lega með heita vatnið vegna bilunar

Bilun varð í Nesjavallavirkjun Orku náttúrunnar sem orsakaði skerta framleiðslu á heitu vatni.

Bilun varð í Nesjavallavirkjun Orku náttúrunnar í morgun sem orsakaði skerta framleiðslu á heitu vatni. Hluti þeirra véla sem sjá um framleiðsluna eru komnar aftur af stað en virkjunin er ekki á fullum afköstum. Vegna þessa biðja Veitur sem dreifa vatninu til íbúa á höfuðborgarsvæðinu, fólk um að fara sparlega með heita vatnið á meðan á viðgerð stendur.

„Það sem við eigum við þegar við hvetjum fólk til þess að fara sparlega með vatnið er ekki að fólk sleppi því að fara í sturtu. Fyrst og fremst skiptir máli að fólk reyni að halda varmanum inni í húsum sínum og sé ekki með glugga opna að óþörfu eða láti renna í pottinn á meðan á viðgerðinni stendur,“ segir Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastýra Veitna.

Þá hafa Veitur einnig haft samband við sína stærstu viðskiptavini sem eru á skerðanlegum töxtum og biðlað til þeirra að lágmarka heitavatnsnotkun eins og unnt er. Þetta eru þeir viðskiptavinir sem kaupa heitt vatn á afslætti gegn því að þegar ástand líkt og hér um ræðir skapast, hafi Veitur heimild til skerðinga. 

„Við erum að reka tvær hitaveitur á höfuðborgarsvæðinu og það er hlutverk okkar að gera allt sem við getum til þess að halda þeim í jafnvægi. Að biðla til fólks um að minnka notkun og halda hitanum inni er liður í því að tryggja þetta jafnvægi.“

Frekari upplýsingar verða gefnar út þegar þær liggja fyrir.

Uppfært kl. 19:00
Nesjavallavirkjun er nú aftur komin ì fulla framleiðslu en enn er verið að greina orsök bilunarinnar. Tilmæli um að fara sparlega með vatnið eru enn í gildi

Uppfært kl. 21.30

Nesjavallavirkjun er komin ì fulla framleiðslu en enn er verið að greina orsök bilunarinnar. Vonast er til að skerðingum og tilmælum um að spara vatnið verði aflétt snemma  í fyrramálið.

Uppfært kl. 12.00 10. október.
Nesjavallavirkjun vinnur nú á fullum afköstum eftir bilun. Skerðingum og sérstökum tilmælum um að fara sparlega með heita vatnið hefur verið aflétt.