Veitur leggja áherslu á að vel er hægt að samræma útivist og vatnsvernd í Heiðmörk. Við viljum að Heiðmörk verði áfram útivistarparadís þar sem fólk nýtur sín í skjóli trjánna. Við viljum bæta aðgengi og aðstöðu fyrir útvist í Heiðmörk í samvinnu við sveitarfélögin og almenning með verndun vatnsins í forgrunni.
Til að tryggja betur vatnsvernd munu Veitur girða að fullu af brunnsvæði kringum vatnstökuholur við Myllulæk á næstu mánuðum. Brunnsvæði er það svæði sem er næst vatnstökuholunum okkar og nýtur algjörrar verndar. Þetta er gert að kröfu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og í samræmi við reglugerðir um vatnsvernd og vatnsverndarsamþykkt höfuðborgarsvæðisins. Þetta mun verða til þess að færa þarf til tvo útivistarstíga innan svæðisins, hluta göngu- og hjólastígs sem kallaður er Ríkishringur og hluta gönguskíðabrautar.
Eftir að brunnsvæði Myllulækjar hefur verið girt af að fullu hefur það svæði sem er algjörlega friðað vegna vatnsverndar stækkað um einungis 1% af heildar flatarmáli Heiðmerkur.
Girðing brunnsvæðis Myllulækjar mun ekki takmarka aðgengi að útivistarstígum en er mikilvægt skref í verndun okkar einstaka neysluvatns.
Breytingin kallar á hliðrun Ríkishringsins og gönguskíðabrautarinnar til suðvesturs - á þessu svæði er mikil gróðursæld og einstakt útsýni
Við sjáum fram á Ríkishringurinn lengist um u.þ.b. 900 m
Ríkishringnum verður ekki lokað á meðan framkvæmdir standa yfir
Við munum leita samráðs við hagaðila á næstu vikum um rýni að drögum að nýrri legu stígsins sem sjá má á eftirfarandi mynd:


Hér má sjá hluta svæðisins þar sem áætlað er að Ríkisihringurinn muni liggja

Nú er loðnuvertíðin fram undan á Akranesi með tilheyrandi aukningu á vatnsnotkun. Í ár kemur vertíðin hins vegar inn í óvenju langa þurrkatíð, sem gerir vatnsbúskap bæjarins viðkvæmari en ella.

Það er einfaldlega komið að okkur að sýna sömu framsýni og fyrri kynslóðir gerðu, til að tryggja heitt vatn til allra í dag og fyrir næstu kynslóðir.