Kveikja, slökkva
Í dag lauk merkilegum kafla í sögu rafveitunnar þegar gamla álagsstýringarkerfið sendi út sitt síðasta merki. Kerfið hafði verið í notkun frá árinu 1972 og gerði okkur kleift að fjarstýra búnaði löngu fyrir tíma netsamskipta og litasjónvarps.
Kerfið gegndi ýmsum hlutverkum á rúmlega 50 ára ferli sínum en síðustu ár hafði það eitt verkefni: að kveikja og slökkva á götuljósum.
Einföld og snjöll tækni
Tæknin á bak við kerfið var einföld en snjöll. Frá Bæjarhálsi voru send merki um háspennukerfið. Í dreifistöðvum rafmagns voru móttökuliðar sem þekktu sinn kóða og kveiktu eða slökktu á réttri götuljósarás.
Á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi voru 23 rásir í notkun í tíu aðveitustöðvum.

Myrkur eða birta úti?
Ljósnemar réðu því um tíma hvenær ljósin kviknuðu og slokknuðu. Þar var ekkert einræði. Tveir ljósnemar þurftu að vera sammála um að farið væri að rökkva áður en ljósin voru kveikt, en þrír þurftu að vera sammála um að orðið væri bjart áður en þau slokknuðu.
Sveitarfélögin hafa tekið við
Við erum nú hætt að stýra götulýsingunni og sveitarfélögin hafa tekið alfarið við henni með nýjum búnaði.
Það var framsýnt fólk sem tók gamla álagsstýringarkerfið í notkun fyrir rúmri hálfri öld. Það hefur sannarlega skilað sínu og lýst okkur leiðina lengur en líklega nokkurn óraði fyrir árið 1972.
Takk fyrir ljósið.
