Skap­andi lausnir á flóknum áskor­unum -Nýsköp­un­ar­festival Veitna 2025

Veitur héldu sitt fyrsta Nýsköpunarfestival 3.-5. júni þar sem hópur skapandi fólks tókst á við áskoranir í orku- og veitumálum. Viðgangsefnin snerta okkur öll, samfélagið í heild sinni og komandi kynslóðir. 

Unnið var eftir hugmyndafræði hönnunarspretta (e. design sprints) og voru fimm áskoranir teknar fyrir á þremur dögum hjá þverfaglegum teymum.  

Markmið var að:
 

  • Leysa stórar áskoranir á stuttum tíma. 

  • Nýta skapandi aðferðir og samvinnu til að finna nýjar lausnir.  

  • Búa til frumgerðir sem verða þróaðar áfram og innleiddar í raunverulegum aðstæðum.  

Nýsköpunarfestivalið  er dæmi um hvernig skapandi aðferðir og samstarf geta leitt til raunhæfra lausna á flóknum áskorunum. Frumgerðir sprettanna munu nú fara í frekari þróun og prófanir með það að markmiði að stuðla að sjálfbærari og skilvirkari lausnum í orku- og veitukerfum. 

Sprettir í hnotskurn   

1. Orkuvitund  - Orkulæsi og valdefling 

Markmið sprettsins var að finna leiðir til að hvetja viðskiptavini til að taka ábyrgð á orkunotkun sinni. Frumgerðin , „Straumur“, er stafrænn orkuþjálfi sem les gögn úr snjallmælum og veitir viðskiptavinum persónubundna ráðgjöf.  
 
Ávinningur: Eykur skilning á eigin orkunotkun, dregur úr orkunotkun og hefur jákvæð áhrif á umhverfið. Bætir þjónustuupplifun og samskipti við viðskiptavini og álag á veitukerfi minnkar með breyttri hegðun. 

2. Fitulaus fráveita – Úrgangur verður auðlind 

Meginmarkmið var að koma í veg fyrir að fita berist í fráveitukerfið og finna leiðir til að umbreyta fitu í auðlind. Lausnin felur í sér markvissa hreinsun fitugildra og greiningu á álagssvæðum, byggt á verklagi og gögnum úr núverandi kerfum.  
Ávinningur: Minni fita í fráveitu, lægri viðhaldskostnaður og hreinni auðlind fyrir endurnýtingu. Skapar möguleika á nýtingu fitu sem hráefnis.  

3. Fráveita framtíðarinnar – Flushing to the Future 

Í þessum spretti var unnið að því að þróa framtíðarsýn fyrir sjálfbært fráveitukerfi, hannað frá grunni. Frumgerðin er vegvísir fyrir framtíðarkerfi með áherslu á dreifð kerfi, endurheimt  auðlinda og aðlögun að loftslagsbreytingum. Afurðirnar eru áætlun um gagnaöflun, þátttöku viðskiptavina, nýsköpun og umbun fyrir notkun regnvatnslausna.  

Ávinningur: Fráveituvatn hreinsað og endurnýtt. Orka sótt í fráveituna og næringarefni endurheimt. Eykur viðnámsþol gagnvart loftslagsbreytingum. Sameinar sjónarmið hagsmunaaðila og nýsköpunar.  

4. Flýtimeðferð framkvæmda-Skilvirkarki uppbygging 

Áskorun sprettsins var að finna leiðir til að hraða framvkæmdum án þess að slaka á gæðum og öryggi.  Lausnin felur í sér notkun dróna sem veitir betri yfirsýn yfir framkvæmdastaði og hraðar ákvarðanatöku. Miðlægt verkefnaborð með gervigreindargreiningu.   
 
Ávinningur: Styttri viðbragðstími, betri ákvarðanataka og bætt samstarf . 

5. Tenging til framtíðar – Samhæfing innviða og uppbyggingar 

Spretturinn leitaðist við að samræma áætlanir sveitarfélaga og veitufyrirtækja til að skapa betri yfirsýn yfir veituinnviði og styðja við stækkun samfélagsins á skilvirkan og sjálfbæran hátt. Frumgerðin  er gervigreindar-tengiliður „agent“ sem veitir samræmd svör og innsýn byggða á sameiginlegum gögnum og leiðir af sér betri ákvarðanatöku. 
 
Ávinningur: Styttir ákvarðanatíma í skipulagi og framkvæmdum. Skapar sameiginlega yfirsýn ólíkra aðila og dregur úr kostnaði og óvissu við uppbyggingu. Eykur traust, gagnsæi og samstarf.