Góður árangur af borunum í Skammadal

Fyrstu prófanir á borholum í Skammadal lofa góðu og Veitur hefja borun við Helgafellshverfi.

Veitur hófu fyrr á árinu borun eftir heitu vatni í Skammadal. Tvær holur hafa nú verið boraðar, hvor á sínu borplaninu og er þeim borunum nú lokið. Fyrstu niðurstöður benda til þess að holurnar séu vatnsmiklar og heitar.

Sérstaklega lofar góðu neðri holan, nær Skammadalslæk, sem hefur farið fram úr björtustu vonum. Veitur hafa því fengið leyfi til að bora aðra holu við hlið hennar.

Með því nýtum við áfram borplanið, vegi og lagnir sem þegar eru til staðar. Það einfaldar framkvæmdir og dregur úr kostnaði.

Borinn færður að Helgafellshverfi

Borinn hefur verið færður á borplan við Helgafellshverfi þar sem bora á tvær holur. Þar hafa verið settar upp hljóðvarnir til að draga úr áhrifum borunarinnar á nágrennið.

Vatni sem notað er við borun verður veitt í svarfþró og eldri borholu á svæðinu og umhverfisvöktun verður haldið áfram.

Reglulegar uppfærslur um borun við Helgafellshverfi eru á þessari síðu.

Tveimur holum frestað

Jafnframt hefur verið ákveðið að fresta tveimur holum sem fyrirhugað var að bora austan við Reykjalund og við Bjargsveg.

Góður árangur í Skammadal gefur tilefni til að skoða svæðið þar nánar. Með því að bora aðra holu á sama stað nýtum við aðstæður sem þegar eru til staðar og fáum um leið betri upplýsingar um möguleika svæðisins til framtíðar.

Tvær borholur verða boraðar við Helgafellshverfi. Ein verður boruð við Skammadalsveg og ein verður boruð aukalega í Skammadal.