Íbúa­fundur í Laug­ar­nesi í kvöld

Veitur ræða fyrirhugaðar boranir eftir heitu vatni.

Veitur boða til íbúafundar á Grand Hótel í kvöld kl. 19.30 þar sem fyrirhugaðar boranir eftir heitu vatni í Laugarnesinu verða kynntar.

Borað verður á tveimur stöðum, í Bolholti og við Engjateig, en Laugarnesið er þekkt og gjöfult lághitasvæði sem hefur þjónað Reykvíkingum um áratuga skeið.

Öll eru velkomin.