Húsfyllir á íbúa­fundi í Mosfellsbæ

Upplýsandi og gott samtal við bæjarbúa á vel heppnuðum fundi

Veitur í samstarfi við Mosfellsbæ héldu íbúafund í Hlégarði í gærkvöldi, 22.júní. Húsfyllir var á fundinum og við erum hæstánægð með áhugann sem bæjarbúar sýndu.

Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri opnaði fundinn áður en Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona Vatnsmiðla hjá Veitum fór yfir boranir í Skammadal og þær mótvægisaðgerðir sem nýttar hafa verið til að hreinsa grugg úr borvatninu.

Sérfræðingar frá ÍSOR, Orkuveitunni og VSÓ Ráðgjöf kynntu m.a. ástæður þess að borað er í Skammadal og tímalínu verksins, hvers vegna vatn gruggast við borun og fyrstu niðurstöður vöktunar á lífríki í og við Varmá.

Góðar umræður um mikilvæg mál

Bæjarbúum í Mosfellsbæ er umhugað um umhverfi Varmár og gagnrýndu Veitur fyrir að hafa veitt gruggugu borvatni út í ána. Íbúar sem þekkja umhverfið vel viðruðu meðal annars áhyggjur sínar af fuglalífi við ána sem hefur að þeirra sögn minnkað töluvert eftir að borvatnið fór í hana. Þar sem lítið hefur verið skrásett af rannsóknum á fuglalífi við Varmá þurfa Veitur að treysta á þekkingu íbúa á svæðinu.

Við tökum þær áhyggjur sem komið hafa fram um möguleg áhrif gruggsins á lífríkið mjög alvarlega, og höfum unnið með fag- og eftirlitsaðilum að mati á umhverfisáhrifum framkvæmdanna frá því að við stöðvuðum boranir.

Sérfræðingar frá Hafrannsóknastofnun og Verkís hafa farið í frumathuganir á stöðu lífríkis Skammadalslækjar og Varmár, og VSÓ, sem fer með umhverfiseftirlit framkvæmdarinnar fyrir Veitur hafa fylgst vel með svæðinu og tekið sýni til efnagreininga.

Niðurstöður frá þessum fagaðilum líta sem betur fer vel út. Engar vísbendingar hafa komið fram í þeirra niðurstöðum um fiskdauða eða umfangsmikið tjón á lífríki árinnar eða fækkun fugla.

Grugg sést á hluta árbotnsins og á stöku stöðum á bökkum og steinum þar sem vatnsborð hefur lækkað. Verkís bendir á að möguleg áhrif a botndýralíf séu, ef þau hafa átt sér stað, líklegast tímabundin.

Leirmikill jarðvegur

Sérfræðingar hafa tekið sýni úr borsvarfinu þar sem það er þéttast næst bornum og þau voru send til virtrar rannsóknarstofu í Noregi til greiningar.

Niðurstöður rannsókna á borsvarfinu, bergmulningsins sem kemur upp með borvatninu eftir notkun, sýna að það er leirkenndara en talið var. Það útskýrir að hluta hvers vegna fínustu agnirnar settust ekki í svarfþrær eins og gert var ráð fyrir. Jarðvegurinn er einnig koparríkur á staðnum, en hann mælist almennt hár í íslenskum jarðvegi og því ekki óeðlilegt við það.

Mælingarnar og vöktun gefa ekki til kynna að hætta hafi skapast fyrir lífríkið, en jafnframt að tilefni sé til aukinnar varúðar á staðnum og ekki hægt að útiloka áhrif á lífríkið. Rannsóknum verður haldið áfram eins lengi og þörf krefur og vöktun stöðug.

Veitur fresta borunum þar til viðunandi lausn finnst fyrir borvatnið

Ákveðið hefur verið að boranir hefjist ekki að nýju fyrr en vissa er fyrir því að grugg berist ekki í ána vegna þeirra. Það sem helst er verið að meta núna er að fá leyfi til að veita borvatninu aftur ofan í jörðina í gegnum óvirkar borholur.

Veitur eru að breyta verklagi og undirbúningi á borframkvæmdum til að tryggja að þær séu unnar í sátt við lífríki, umhverfið og samfélagið.

Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri Mosfellsbæjar opnaði fundinn
Vel var mætt á fundinn og góðar umræður