Vatnstökusvæðið við Grábrók var bylting í vatnsöflun fyrir Norðurárdal og Borgarfjörð þegar það var tekið í notkun. Það hefur reynst vel og vatnsgæðin góð þó svæðið sé viðkvæmt fyrir utanaðkomandi áhrifum. Mikil úrkoma og jarðhræringar á Reykjanesi hafa aukið grugg í vatninu, en það er fíngert og erfitt að sía það svo vel sé.
Til að takmarka grugg í veitunni er mikilvægt að hún sé í jafnri notkun og til að ná því stendur yfir endurnýjun á vatnstökusvæði á Seleyri. Þaðan fær Borgarnes stóran hluta af sínu neysluvatni sem gerir betri stjórn á notkun í Grábrókarveitu mögulega.
Aðgerðir til skemmri og lengri tíma
Á næstu vikum hefja Veitur tilraunaverkefni með enn fíngerðari síum til að skoða virkni slíks búnaðar á smærri skala. Verkefnið er samstarfsverkefni með sérfræðingum frá Svíþjóð.
Veitur hafa jafnframt gert samkomulag við landeigendur í Hvassafelli og á Brekku um neysluvatnsrannsóknir. Tilraunaboranir í landi Hvassafells hefjast snemmsumars og gerð könnunargryfja á báðum jörðum til að kanna efnisgerð og vatnsgæfni.
Skolað úr lögninni
Tvisvar til fjórum sinnum á ári er stofnlögnin frá Grábrók skoluð út til að ná því gruggi sem safnast fyrir í lögninni. Það hefur reynst vel megnið af leiðinni, en því miður þá eru ákveðin svæði sem hafa þá orðið vör við aukið grugg í vatninu hjá sér. Íbúar og aðrir viðskiptavinir á svæðinu fá tilkynningu fyrirfram til að hægt sé að grípa til ráðstafana.
Þegar lögnin er skoluð þá fellur þrýstingur á svæðinu í kring og jafnvel verður vatnslaust hluta úr degi.
Hver útskolun tekur 2 til 3 vikur í framkvæmd.
Veitur skola úr lögninni til að tryggja öllum íbúum hreint neysluvatn.