Gert er ráð fyrir að framkvæmdirnar muni standa yfir í tæpa viku. Á meðan á framkvæmdum stendur þarf að taka dælustöðina úr rekstri, sem þýðir að losa þarf óhreinsað skólp í sjó á framkvæmdatímanum. Óhreinsað skólp og rusl getur því verið sjáanlegt fólki á svæðinu á þessum tíma og er fólki bent á að fara ekki í fjöru í nágrenni stöðvarinnar á meðan á þessu stendur. Veitur sögðu frá yfirgripsmikilli endurnýjun búnaðar í fráveitu Veitna vorið 2021 og eru þessar aðgerðir hluti þess verkefnis.
Neyðarlúga í skólpdælustöð fráveitu við Ingólfsstræti verður opnuð til að hægt sé að vinna að endurnýjun búnaðar. Neyðarlúgur eru mikilvægur þáttur í að koma í veg fyrir að við stöðvun komi skólp upp um niðurföll í híbýlum fólks. Þegar neyðarlúgur eru opnaðar vinna Veitur samkvæmt skilgreindu verkferli sem m.a. felur í sér að upplýsa Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og hefja vöktun og hreinsun á ströndinni.
Við minnum á nú sem endranær að rusl á ekki að fara í klósettið. Rusl sem hent er í salerni getur endað í sjó ef dælu -og hreinsistöðvar eru ekki virkar. Sjórinn hreinsar lífrænu efnin hratt og slík mengun varir í skamman tíma. Öðru máli gegnir um rusl , eins og blautklúta, tannþræði, eyrnapinna og dömubindi svo fátt eitt sé nefnt.
Veitur, in collaboration with Elliðaárstöð, takes part in the Winter Lights Festival for the first time. With an electrifying experience for all the senses on Friday, February 2, from 6 to 9 p.m.
Orkan úr eldhúsinu er nýtt samvinnuverkefni Veitna og Sorpu sem miðar að því að endurnýta afgangsolíu úr eldhúsinu og vernda lagnir heimilisins.