Áður en ákveðið er hvernig hlaða skal rafbílinn heima er mikilvægt að skoða uppsetningu hleðslulausna. Hér má finna góð ráð og upplýsingar þess efnis.
Einbýlishús hafa sér rafmagnsheimtaug. Það á einnig oftast við um par- og raðhús. Minnstu rafmagnsheimtaugar eru einfasa 63A, sem samsvarar 14kW.
Veitur mæla ávalt með vali á snjöllum hleðslustöðvum sem bjóða upp á álagsstýringu fyrir allar tegundir húsnæðis. Þetta á sérstaklega við þegar settar eru upp tvær eða fleiri hleðslustöðvar og er nauðsynlegt fyrir bílskúrslengjur.
Yfirleitt er hægt að sjá hversu stór heimtaug er með því að skoða stærð aðalvara í rafmagnstöflu.
Einfaldasta leiðin til að sjá hversu margir fasar eru tengdir inn í sérbýli er að skoða rafmagnsmælinn. Ef á mælinum stendur 230 V þá er einn fasi tengdur. Ef á mælinum stendur 3x230/400 V þá eru þrír fasar tengdir. Í flestum tilvikum er hægt að breyta heimtaug úr einfasa yfir í þriggja fasa. Hafðu samband við rafverktaka sem aðstoðar þig við uppsetningu.
Tegund rafbíls ræður því hversu stór hleðslustöð er nauðsynleg. Einnig þarf að hafa í huga stærð heimtaugar og aðra aflnotkun heimilis. Algeng hámarksaflnotkun sérbýlis er 5 til 7kW.
Til viðmiðunar má draga hámarksaflnotkun frá stærð heimtaugar til að finna út hversu stóra hleðslustöð er hægt að setja upp.
Hleðslustraumur | Hleðsluafl | Drægni eftir 1 klst. hleðslu* | Hleðslutími 40 kWh rafhlöðu úr 20% í 80% |
---|---|---|---|
10A/16A - hefðbundinn tengill | 2,3 kW | 11 km | 10 klst. |
16A, einfasa - fasttengd stöð | 3,6 kW | 18 km | 7 klst. |
32A, einfasa - fasttengd stöð | 7,3 kW | 36 km | 3 klst. |
16A, þriggja fasa - fasttengd stöð | 11,0 kW | 55 km | 2 klst. |
32A, þriggja fasa - fasttengd stöð | 22,0 kW | 110 km | 1 klst |
Dæmi:
Stærð einfasa heimtaugar er 63A eða 14kW. 14kW-7kW=7kW sem hægt er að nota til hleðslu.
Athugið að sumar hleðslulausnir bjóða upp á álagsstýringu sem dregur úr afli hleðslustöðvar á meðan önnur notkun heimilis er mikil. Þetta er einnig mikilvægt að hafa í huga þegar fleiri en ein hleðslustöð er sett upp.
Meðalakstur fólksbíls er um 40km á dag og því er meðalorkuþörf rafbíls aðeins 8kWh.
Hvenær er best að hlaða?
Rafmagnsálag heimila nær yfirleitt hámarki á tímabilinu 16:00-22:00 síðdegis en er síðan í lágmarki frá 22:00-06:00. Við mælum með því að hlaða á þeim tíma þar sem álagið er minnst. Flestum dugar að hlaða yfir nóttina þegar önnur notkun heimilis er lítil. Flestir rafbílar og sumar hleðslustöðvar bjóða upp á þann möguleika að stilla hvenær hleðsla á að hefjast.