Vatnalíf í borg­inni

Blágrænar lausnir sem lykill að hreinni tjörnum, sterkari flóðavörnum og sjálfbærari borg.

Þegar regnvatnið fær að fara sínar eigin leiðir.

Á nýlegu málþingi Reykjavíkurborgar um verkefnið Vatnalíf var sjónum beint að því hvernig hægt er að nýta regnvatn betur í borginni. Sérstaklega var rætt um Kvosina og Tjörnina og hvernig draga megi úr flóðahættu á sama tíma og vatnsumhverfið er verndað.

Blágrænar ofanvatnslausnir voru þar í lykilhlutverki. Þær fela í sér að regnvatn fái frekar að síga niður í jarðveginn og fylgja náttúrulegum farvegum sínum í stað þess að renna beint í fráveitukerfið.

Með því má draga úr álagi á fráveituna þegar mikið rignir, minnka líkur á flóðum og skapa heilbrigðara og grænna borgarumhverfi.

Veitur vinna áfram að lausnum sem nýta vatnið betur, styrkja innviðina og gera samfélagið betur í stakk búið til framtíðar.

Horft til Vatnsmýrarinnar

Veitur áttu tvö erindi á málþinginu. Jón Pétur Wilke, verkefnastjóri Vatnalífs hjá Veitum, fjallaði meðal annars um stöðuna í Vatnsmýrinni og næstu skref verkefnisins. Þar er nú verið að safna gögnum og greina aðstæður til að styrkja flóðavarnir og tryggja að fjármunum sé varið þar sem þeir nýtast best. Markmiðið er að finna lausnir sem þjóna bæði samfélaginu og umhverfinu til lengri tíma.

Vatnið rennur að friðlandi í Vatnsmýrinni

Ný hugsun í Þingholtunum

Í seinna erindi Jóns Péturs beindi hann sjónum gesta að Þingholtunum þar sem verið er að skoða framtíðarfyrirkomulag fráveitu.

Þingholtin tilheyra elsta hluta borgarinnar þar sem enn er blandað fráveitukerfi, en þá fer regnvatn og skólp sömu leið í kerfinu. Í mikilli úrkomu getur það skapað áskoranir.

Þess vegna eru blágrænar ofanvatnslausnir meðal þeirra leiða sem skoðaðar eru sérstaklega. Með þeim er hægt að halda meira af regnvatni ofanjarðar eða í jarðvegi og draga þannig úr álagi á fráveituna þegar mest á reynir.

Samstarf fyrir betra vatnsumhverfi

Vatnalíf er samstarfsverkefni 22 sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja víðs vegar um landið. Verkefnið hlaut einn stærsta styrk sem íslensk verkefni hafa fengið úr LIFE-áætlun Evrópusambandsins og stendur yfir í fimm ár.

Vatnsvernd er stór hluti verkefnisins, en einnig er unnið að því að bæta flóðavarnir, styrkja meðhöndlun ofanvatns og stuðla að hreinna vatnsumhverfi.

Hreinar strendur og ábyrg meðferð vatns eru meðal þeirra markmiða sem Veitur hafa unnið að um árabil.

Með verkefnum á borð við Vatnalíf vinnum við áfram að því að þróa innviði sem nýta vatnið betur, vernda umhverfið og gera samfélagið betur í stakk búið fyrir framtíðina.

Jón Pétur Wilke Gunnarsson, verkefnastjóri Vatnalífs hjá Veitum

Hvernig getum við aðstoðað þig?