Þegar lagnir eru lagðar til að tengja íbúa og fyrirtæki við nauðsynlega innviði hugsa Veitur til framtíðar með endingartíma talinn í áratugum. Þróun samfélagsins er hröð og þarfir nútímans duga ef til vill ekki til eftir aldarfjórðung. Þess vegna leita Veitur sífellt að lausnum sem gefa möguleika á nýtingu til langs tíma, með umhverfisvænar og hagkvæmar lausnir í fyrirrúmi.
Ein slík aðferð eru steyptir rörastokkar fyrir stóra rafmagnsstrengi. Besti endingartími rafstrengja er þegar þeir eru lagðir í heilu lagi sem lengst. Það krefst þó alla jafna skurða sem eru opnir langa leið allan verktímann.
Aðferðin sem Veitur nota í fyrsta sinn í sumar er þannig að um 50 metra langur skurður er grafinn og rör með festingum sett niður. Þá er steypt umhverfis rörin sem mynda steyptan rörastokk utan um rörin sem heldur þeim á sínum stað og ver þau fyrir hnjaski á borð við gröfuskóflur. Að framkvæmd lokinni eru rafstrengir drengnir í gegnum rörin í heilu lagi og auka endingartímann til muna. Aukarör eru sett með sem nýtast síðar ef leggja þarf fleiri strengi á sama svæði. Þá er hægt að draga nýja strengi í gegnum rörin án þess að grafa skurð.
Til skamms tíma eru steyptir rörastokkar dýrari lausn fyrir Veitur, en til lengri tíma er hún hagkvæmari þar sem ekki þarf að grafa nýja skurði þó bæta eigi við rafstrengjum á svæðinu.
Kolefnisspor framkvæmdarinnar er til skamms tíma það sama og með hefðbundinni aðferð, en langtímaáhrifin eru mun minni þar sem engir nýir skurðir eru nauðsynlegir þó fleiri raflagnir bætist við.
Í sumar verður þessi leið m.a. notuð við Holtaveg þar sem umferð er mikil og þvera þarf íbúagötur. Með því að steypa rörastokka er hægt að vinna á minna svæði í einu og lágmarka þannig truflanir fyrir íbúa.
Við Holtaveg verður þrenging á götunni á um 50 metra kafla hverju sinni, en komið í veg fyrir að loka þurfi annarri akreininni í heild sinni með tilheyrandi truflun fyrir íbúa. Sama aðferð verður nýtt við Sæbraut þar sem unnið verður meðfram göngu- og hjólastígum í sumar.
Veitur leita sífellt að umhverfisvænni og hagkvæmari aðferðum við lagnavinnu, samfélagi og umhverfi til hagsbóta.
Veitur leggja áherslu á að vel er hægt að samræma útivist og vatnsvernd í Heiðmörk. Við viljum að Heiðmörk verði áfram útivistarparadís þar sem fólk nýtur sín í skjóli trjánna. Við viljum bæta aðgengi og aðstöðu fyrir útvist í Heiðmörk í samvinnu við sveitarfélögin og almenning með verndun vatnsins í forgrunni.
Nú er dagskrá fyrir Nýsköpunarfestival Veitna, sem haldið verður dagana 3.-5. júní í Elliðaárstöð, farin að taka á sig mynd