Í næstu viku hefja Veitur framkvæmdir í hreinsistöð skólps við Klettagarða. Kominn er tími til að endurnýja búnað svo auka megi rekstraröryggi stöðvarinnar. Áætlað er að verkið taki 6-7 vikur og á meðan á því stendur aukast líkur á þvi að hleypa þurfi óhreinsuðu skólpi um neyðarlúgur í sjó, einkum í vætutíð.
Hægt er að fylgjast með stöðu neyðarlúga dælu- og hreinsistöðva fráveitu Veitna á Fráveitusjánni. Sett verða upp upplýsingaskilti við fjörur í nágrenni hreinsistöðvarinnar ef neyðarlúga er opin svo fólk haldi sig fjarri sjónum. Í framhaldinu verður fylgst með fjörum og þær hreinsaðar ef á þarf að halda.
Losun skólps í sjó í skamman tíma hefur ekki varanleg áhrif á lífríkið og örverur í skólpi lifa einungis örfáar klukkustundir í sjónum. Rusl í skólpinu er stærra vandamál. Það velkist um í sjónum og getur skolað upp í fjörur, öllum til ama. Fólk er því enn og aftur minnt á að ekkert á að fara í klósett nema líkamlegur úrgangur og klósettpappír.
Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.
Neysluvatn, hitaveita, rafmagn og fráveita eru lífsnauðsynlegir innviðir. Þetta eru grunnstoðir samfélagsins, forsenda öryggis, heilsu, atvinnuuppbyggingar og lífsgæða.
Nemar úr Listaháskólanum gera umhverfið notalegra með nýtingu afgangsvarma frá Veitum.