Tækni­skóla­heim­sókn í Kletta­garða

Veitur tóku þátt í Tækniskóladeginum og buðu nemendum í heimsókn í Klettagarða.

Tækniskóladagurinn var haldinn í fjórða sinn fimmtudaginn 24. september. Veitur tengjast fagsviðum Tækniskólans á fjölbreyttan hátt og að þessu sinni var nemendum boðið að heimsækja Klettagarða, stærstu hreinsistöð fráveitu á Íslandi.

Nemarnir kíkja á það sem síast frá í hreinsistöðinni

Stefán Hansen, sérfræðingur í rekstri hjá Veitum, tók á móti tuttugu nemendum og kynnti starfsemina fyrir þeim. Nemarnir fengu að sjá hvernig fráveituvatn er hreinsað áður en því er veitt til sjávar, skoða risastórar síur sem stöðva rusl á leið um kerfið og kynnast þeim búnaði sem sér um að hreinsa tugþúsundir lítra af fráveituvatni á hverjum degi.

Nemarnir fengu einnig innsýn í hvað raunverulega endar í fráveitunni og hversu mikla vinnu þarf að leggja í að fjarlægja hluti sem eiga aldrei að fara niður um klósett eða niðurföll. Það vakti skiljanlega athygli margra.

Til að gæta öryggis þurfti að takmarka fjölda þátttakenda, en áhuginn lét ekki á sér standa.

Markmið Tækniskóladagsins er að efla tengsl nemenda við atvinnulífið og gefa þeim tækifæri til að kynnast fjölbreyttum störfum og fyrirtækjum sem tengjast þeim fagsviðum sem kennd eru við Tækniskólann.

Hjá Veitum starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga sem heldur uppi innviðum sem samfélagið treystir á alla daga ársins og framtíðarverkefnin kalla á nýja kynslóð fagfólks.

Hluti nemanna ásamt Stefáni í rýminu þar sem óæskilegur úrgangur er flokkaður.

Hvernig getum við aðstoðað þig?