Stofn­lögn hita­veitu við Suður­lands­braut endur­nýjuð

Til að tryggja öryggi og heitt vatn til heimila á stóru svæði.

Veitur vinna nú að endurnýjun á stofnlögn hitaveitu við Suðurlandsbraut. Lögnin er ómissandi hluti af hitaveitunni á höfuðborgarsvæðinu. Nauðsynlegt er að skipta henni út til að tryggja að heita vatnið berist með öruggum hætti til íbúa og fyrirtækja á stóru svæði í Reykjavík, þar á meðal í Múlum, Laugarnesi og Álfheimum. Þetta er einnig nauðsynlegt til að tryggja að ekki verði slys þar sem lögnin er farin að láta á sjá.

Framkvæmdin er alfarið á vegum Veitna og tengist hvorki Borgarlínu né framtíðarskipulagi við Suðurlandsbraut.

Unnið verður í Suðurlandsbraut í tveimur áföngum. Hitaveitulögnin sjálf er merkt með breiðu rauðu striki.

Heitavatnslögnin liggur undir Suðurlandsbraut og til að ekki þurfi að loka götunni þá verður settur lítill krókur á umferð í vesturátt og síðar austurátt eftir því hvar unnið er.

Vinstri beygja af Suðurlandsbraut í Lágmúla verður lokuð á meðan unnið er í Suðurlandsbraut en opnar að nýju þegar því er lokið. Það er nauðsynlegt til að hægt sé að halda Suðurlandsbraut opinni á meðan unnið er.

Í vikunni 20.-24. apríl hefst undirbúningur á Suðurlandsbraut og einni akrein í austurátt verður lokað til að tryggja öryggi á svæðinu.

Unnið meðfram hjóla- og göngustíg

Meðfram Suðurlandsbraut er mikilvæg umferðaræð hjólandi og gangandi vegfarenda. Hitaveitulögnin liggur við stígana og nýr stígur verður lagður nærri núverandi staðsetningu. Sameina þarf stíginn fyrir gangandi og hjólandi og útbúa hjáleið á hluta af leiðinni á meðan vinnu stendur í sumar.

Þverun að Engjateig síðla sumars

Aðkoma að Engjateig frá Suðurlandsbraut verður þveruð um tíma í sumar, en aðkoma frá Kringlumýrarbraut og Reykjavegi verður opin allan tímann.

Hvaða lögn er verið að endurnýja?

Hitaveitulögnin er af stærri gerðinni því hún safnar vatni frá borholum á svæðinu og flytur til að hægt sé að dæla því til íbúa og fyrirtækja á stóru svæði. Vatnið í henni er 110°C og er blandað upp með kaldara hitaveituvatni (m.a. bakvatni) til að það berist ekki alltof heitt heim til fólks.

Á sumrin þegar notkun er minni eru lághitasvæðin hvíld til að nýting sé sjálfbær til framtíðar. Þá er tækifærið nýtt til að endurnýja safnlögnina án þess að það hafi áhrif á afhendingu heits vatns á meðan.

Öryggi allra í fyrirrúmi

Veitur setja öryggismálin ávallt í forgang, bæði vegfarenda og starfsfólks. Kröfur til verktaka eru miklar að vanda til verka og Veitur vilja fá að heyra af því ef öryggismálum er ábótavant.

Tengdar fréttir: https://www.veitur.is/frettir/sumarid-er-timinn

Hvernig getum við aðstoðað þig?