Samstarf Veitna og Lista­há­skólans varpar nýju ljósi á tæki­færi í fráveitu

Vorið 2026 hófu Veitur samstarf við meistaranám í hönnun þar sem skoðað var hvernig hönnunaraðferðir geta stutt við nýsköpun og sjálfbæra þróun innviða.

Vorið 2026 hófu Veitur samstarf við meistaranám í hönnun, MA Design and New Environments við Listaháskóla Íslands, þar sem skoðað var hvernig hönnunaraðferðir geta stutt við nýsköpun og sjálfbæra þróun innviða. 

Nemendurnir Dorothea Olesen Halldórsdóttir og Sólrún Arnarsdóttir unnu rannsóknar- og hönnunarverkefni sem tengdist stefnuverkefni Veitna um aukna nýtingu hliðarafurða úr fráveitu. Verkefnið byggði á vettvangsferðum, samtali við sérfræðinga og greiningu á innviðum með það að markmiði að skoða hvernig hægt væri að umbreyta fráveitukerfinu úr huldum innviðum í sýnilegra auðlindakerfi. 

Frá veitu til virðis 

Ein af megin niðurstöðum verkefnisins er að líta á bakvatn sem samfélagslegt tækifæri og auðlind fremur en úrgang. Hugmyndin felst í að nýta varma bakvatns í áföngum áður en því er skilað aftur til náttúrunnar, til dæmis til að hita upp almenningsrými, gróðurhús eða önnur samfélagsleg svæði. Jafnframt er bent á að með því að aðskilja hliðarafurðir fyrr í ferlinu skapist aukin tækifæri til að nýta verðmæti þeirra, svo sem fitu til framleiðslu lífdísels, og draga um leið úr álagi á fráveitukerfið. 

Sem dæmi um mögulega áframhaldandi þróun var Breiðholt skoðað sem tilraunasvæði, þar sem núverandi tvöfalt lagnakerfi býður upp á spennandi möguleika til að þróa nýjar lausnir sem tengja saman innviði, vistkerfi og almenningsrými. 

Verkefnið undirstrikar mikilvægi þess að skoða fráveitukerfið út frá nýjum sjónarhornum og styrkja tengingar milli hönnunar, rannsókna og veitustarfsemi. Samstarfið er gott dæmi um hvernig Veitur vinna með háskólasamfélaginu að því að þróa nýjar hugmyndir og lausnir sem styðja við sjálfbærari innviði og verðmætasköpun til framtíðar.

Hvernig getum við aðstoðað þig?