.jpg?width=3840&quality=75&branch=main)
Losun gróðurhúsalofttegunda hjá rafveitu eru almennt frekar lítil. Stærsta umhverfissporið er vegna SF6 gass sem er í rofabúnaði rafveitunnar og veldur gróðurhúsaáhrifum ef það losnar út í andrúmsloftið. Í nýlegu útboði fyrir rofabúnað í dreifistöðvar tókum við þá ákvörðun að auglýsa eftir búnaði sem var án SF6 gass og væri auk þess fjarstýranlegur til að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar.
Við keyptum rofabúnað frá Eaton sem uppfyllti þessi skilyrði. Auk þess að draga úr umhverfisáhrifum bætir þessi rofabúnaður þjónustu við viðskiptavini þar sem hann styttir straumleysi og styður við stafræna vegferð Veitna.

Til að tryggja öryggi og heitt vatn til heimila á stóru svæði. Búast má við einhverjum umferðartöfum frá maí fram í miðjan júní.

Hlutverk Veitna er að tryggja að fráveiturkerfið sé áreiðanlegt, öruggt og tilbúið fyrir áskoranir framtíðarinnar.