Mánudaginn 27. janúar hófst dæling á heitu vatni úr nýrri borholu, HE-17, sem er í Bæjarsveit. Vatnið er 91°C heitt og 20 sekúndulítrar komu úr holunni, en það er góð viðbót við hitaveituna á Vesturlandi.
Borholan, HE-17, var fullboruð árið 2022 og þessa dagana standa yfir prófanir á holunni sem lofar góðu sem gjöful og góð hola. Þegar ný hola er tekin í notkun þarf að byrja á því að hita upp dælubúnaðinn sem er ofan í holunni og gera prófanir áður en holan er hreinsuð með dælingu. Í þetta sinn rann fljótt hreint og gott vatn um skolslönguna og holan því tilbúin fyrir síðustu prófanir áður en hún nýtist inn í kerfin.
HAB-Deildartunguveitan sem borholan er hluti af veitir heitu vatni í Borgarnes, Hvanneyri og Akranes auk dreifibýlis á svæðinu. Deildartunguhver sem er meginuppspretta hitaveitunnar gefur 180 sekúndulítra sem eru 93% af heildarmagni heita vatnsins í veitunni. Auk Deildartungu eru holur í Laugarholti og á Bæ sem samtals veita 50 l/s inn í hitaveituna á svæðinu.
Veitur leggja áherslu á að vel er hægt að samræma útivist og vatnsvernd í Heiðmörk. Við viljum að Heiðmörk verði áfram útivistarparadís þar sem fólk nýtur sín í skjóli trjánna. Við viljum bæta aðgengi og aðstöðu fyrir útvist í Heiðmörk í samvinnu við sveitarfélögin og almenning með verndun vatnsins í forgrunni.
Nú er dagskrá fyrir Nýsköpunarfestival Veitna, sem haldið verður dagana 3.-5. júní í Elliðaárstöð, farin að taka á sig mynd