Lýsum upp skamm­degið á Vetr­ar­hátíð

Veitur eru stoltur styrktaraðili Vetrarhátíðar og styrkja gerð tveggja ljóslistaverka sem sýnd verða á Ljósaslóð hátíðarinnar.

Verkið Ljóslifandi stendur við Austurvöll á Vetrarhátíð

Ljósaslóðin er gönguleið sem er vörðuð ljóslistaverkum frá Hallgrímskirkjutorgi niður Skólavörðustíg, um Lækjartorg og Austurvöll, og endar í Ráðhúsi Reykjavíkur sem lýst er upp utandyra og innan. https://reykjavik.is/vetrarhatid/ljosaslod

„Við hjá Veitum erum stolt af því að taka þátt í Vetrarhátíð og styrkja gerð ljóslistaverka sem varpa upp fallegri birtu í skammdeginu,“segir Jón Trausti Kárason, forstöðumaður rafveitu hjá Veitum. „Okkar hlutverk er að tengja samfélagið okkar raforku og sjá til þess að komandi kynslóðir búi við þessi sömu lífsgæði um ókomna tíð. Með ört vaxandi samfélagi er nauðsynlegt að byggja upp og viðhalda rafdreifikerfinu í þeim tilgangi að tryggja aðgengi samfélagsins að rafmagni. Það er gott að minna á það með frábærum ljóslistaverkum sem borgarbúar geta notið á Vetrarhátíð.“

Tvö ljóslistaverk valin á Vetrarhátíð 2026

Veitur og Reykjavíkurborg stóðu fyrir samkeppni um tvö ljóslistaverk í almannarými borgarinnar fyrir Vetrarhátíðina líkt og undanfarin ár. Alls bárust 18 tillögur í samkeppnina að þessu sinni. Verkin sem urðu fyrir valinu eru: Ljóslifandi og Í NÝJU LJÓSI.

Ljóslifandi

Í umsögn dómnefndar segir:

„Ljóslifandi er einhvers konar upplifun frekar en hlutur eða skúlptúr á víðavangi. Verkið býður gestum að ganga inn í rými, heim sem blandar saman efni og birtu. Hálfgerður gangur, hálfgerður hljómur, þar sem ljósið sjálft verður leiðarljós á ferðinni. Hvert sjónarhorn breytir upplifuninni. Utan frá er verkið skúlptúr, sterkt, málmkennt og skýrt. Innan frá verður það mjúkt og hreyfanlegt, því ljósið tekur völdin.“

Að verkinu standa:

• Sigurður Bogi Ólafsson, ljósahönnuður og tæknimaður, rafeindavirki og nemi í hátækniverkfræði við Háskólann í Reykjavík.

• Gunnlaugur Eiður Björgvinsson, ljósa- og myndtæknimaður, BSc í Tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

• Vikar Máni Þórsson, ljósahönnuður.

Í NÝJU LJÓSI

Í umsögn dómnefndar segir:

„Verkið er tilraun til að varpa nýju ljósi á birtuna innra með okkur öllum í von um að hún nái að lýsa upp skammdegið. Með verkinu vill listamaðurinn bjóða áhorfandanum að skipta um sjónarhorn í augnablik og horfa á sjálft sig með augum einhvers sem ber hlýju og ást í brjósti til viðkomandi. Með hverju og einu smáatriði í verkinu er reynt að sýna fram á hvernig upplifunin breytist eftir því hvert sjónarhornið er og með því skapa augnablik sjálfsmeðvitundar og mildi, þar sem áhorfandinn finnur fyrir eigin nærveru í nýrri mynd, bókstaflega og táknrænt.“

Að verkinu stendur Björt Sigfinnsdóttir, listakona

Vetrarhátíð stendur yfir til 5.- 8.febrúar.

Verkið Í NÝJU LJÓSI stendur við Ráðhús Reykjavíkur á Ljósanótt

Hvernig getum við aðstoðað þig?