
Veitur boða til íbúafundar á Grand Hótel í kvöld kl. 19.30 þar sem fyrirhugaðar boranir eftir heitu vatni í Laugarnesinu verða kynntar.
Borað verður á tveimur stöðum, í Bolholti og við Engjateig, en Laugarnesið er þekkt og gjöfult lághitasvæði sem hefur þjónað Reykvíkingum um áratuga skeið.
Öll eru velkomin.