Íbúa­fundur á Akra­nesi

Miðvikudaginn 19. nóvember kl. 19.30-21.30 í Golfskálanum

Veitur boða til íbúafundar á Akranesi til að eiga samtal við bæjarbúa um þjónustu fyrirtækisins í sveitarfélaginu. Fundurinn verður haldinn í Golfskálanum miðvikudaginn 19. nóvember kl. 19.30-21.30.

Haraldur Benediktsson bæjarstjóri opnar fundinn og Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastýra Veitna fer yfir starfsemi fyrirtækisins í bænum.

Sólrún mun meðal annars ræða fyrirhugaða leit að heitu vatni, hvers vegna lekar eru algengari á sumum svæðum en öðrum og hvernig Veitur munu vaxa með samfélaginu á Skaganum.

Fundurinn er öllum opinn og nægur tími gefst til að svara spurningum úr sal.

Öll velkomin

Hvernig getum við aðstoðað þig?