Heim­sókn frá græn­lenskum vinum

Orku og veitufyrirtækið Nukissiorfiit kíkti í heimsókn til okkar.

Veitur fengu nýverið góða gesti í heimsókn frá grænlenska veitu- og orkufyrirtækinu Nukissiorfiit. Fyrirtækið er í eigu grænlenska ríkisins og sér um afhendingu rafmagns og neysluvatns víða um Grænland. Það rekur jafnframt hitaveitu á afmörkuðum svæðum.

Markmiðið var að efla tengsl innan orku- og veitugeirans og skapa vettvang til að miðla reynslu og þekkingu. Fulltrúar Nukissiorfiit og Veitna ræddu fjölbreytt viðfangsefni, deildu reynslu og nýjum aðferðum. Þar voru meðal annars rædd rafmagns- og hitaveitumál, neysluvatn, uppbygging innviða og hvernig tryggja megi öfluga og sjálfbæra veituþjónustu til framtíðar.

Fulltrúar Veitna og Nukissiorfiit.

Fyrir hönd Veitna tóku Hrefna Björg, Þráinn, Ásgrímur, Olgeir og Rafn á móti gestunum og kynntu starfsemi fyrirtækisins. Farið var yfir þau tækifæri og áskoranir sem fylgja því að þjónusta vaxandi samfélag þar sem sífellt meiri kröfur eru gerðar til innviða og afhendingaröryggis.

Gestirnir voru Johan Danielsen, Filip Sivertsen, Ole Karl Poulsen og Simon Cordes. Auk heimsóknarinnar til Veitna kynntu þeir sér starfsemi fleiri fyrirtækja og stofnana innan orku- og samgöngugeirans á Íslandi.

Sem þakkarvott færðu gestirnir Veitum Tupilak að gjöf, hefðbundið grænlenskt listaverk sem mun minna á heimsóknina um ókomin ár.

Mikilvægt er fyrir fyrirtæki sem sinna samfélagslega mikilvægum innviðum að eiga í reglulegu samtali við sambærilegar veitur. Með því að bera saman reynslu, lausnir og áskoranir skapast ný sjónarhorn og tækifæri til að þróa þjónustu sem nýtist samfélaginu til framtíðar.

Hvernig getum við aðstoðað þig?