Fram­kvæmdir Veitna við Laug­arnes

Veitur leggja háspennustrengi til að tryggja orkuskipti.

Veitur hafa undirbúið framkvæmdir meðfram hjólastíg við Laugarnes um nokkurt skeið og verið í samráði við Minjastofnun og Reykjavíkurborg. Samkvæmt kröfu frá Minjastofnun hefur óháður fornleifafræðingur verið ráðinn til að tryggja rétt vinnubrögð og umgang nærri fornleifar á svæðinu. Umsókn fornleifafræðings til Minjastofnunar hefur verið afgreidd, en hún lá fyrir hjá stofnuninni.

Vegna misskilnings hófst vinna á svæði án eftirlits fornleifafræðings og hún var stöðvuð um leið og það varð ljóst. Veitur vilja vanda til verka og leggja áherslu á að unnið sé undir eftirliti á staðnum og í þegar röskuðum jarðvegi líkt og áætlað er.

„Það er óheppilegt að misskilningur hafi orðið og verktakinn talið sig vera utan eftirlitssvæðis. Enginn skaði hefur þó orðið á vernduðu svæði og við erum að merkja allt vel áður en grafið er. Það verður unnið í núverandi lagnaleiðum og fylgst með öllum framkvæmdum“ segir Vala Garðarsdóttir, fornleifafræðingur.

Veitur ásamt verktaka og fornleifafræðingi hittu fulltrúa Minjastofnunar og svæðið var yfirfarið og merkt. Þá kom í ljós að bæði skurðurinn og jarðvegurinn úr honum voru á mörkum beðasléttanna og þær hafa ekki orðið fyrir raski af þessum sökum.

„Jarðvegurinn úr skurðinum liggur þar sem beðaslétturnar eru ógreinilegar og utan við mörkin sem sjást á Minjavefsjá, en það þarf að fjarlægja hann varlega. Það hafa engar skemmdir orðið á vernduðu svæði og mestu máli skiptir að unnið sé á áður röskuðu svæði eins og hefur verið gert þarna“ segir Þór Hjaltalín sviðsstjóri hjá Minjastofnun. (Sjá Minjavefsjá)

Veitur eru að leggja háspennustrengi í steypta rörastokka (sjá nánari umfjöllun) til að tryggja orkuskipti fyrir vöru- og farþegaflutninga ásamt því að auka almennt getuna til orkuskipta.

Hvernig getum við aðstoðað þig?