Frábær dagskrá og spenn­andi sprettir

Nú er dagskrá fyrir Nýsköpunarfestival Veitna, sem haldið verður dagana 3.-5. júní í Elliðaárstöð, farin að taka á sig mynd

Nú er dagskrá fyrir Nýsköpunarfestival Veitna, sem haldið verður dagana 3.-5. júní í Elliðaárstöð, farin að taka á sig mynd og spennandi sprettir bíða ráðstefnugesta. Markmið atburðarins er að leysa stórar áskoranir í orku- og veitumálum á stuttum tíma með því að vinna saman, nota sköpunarkraftinn, rökhugsun og snerpu.

Aðferðafræðina má rekja til Northumbrian Waters Innovation festival í Newcastle sem er eitt stærsta veitu tengda nýsköpunarfestival í heiminum en heiti og lýsingu á sprettunum má sjá hér:


Flýtimeðferð framkvæmda:
 

Hvernig getum við hraðað framkvæmdum í veitukerfum – án þess að slaka á öryggi og gæðum? 

Veituframkvæmdir taka oft langan tíma, raska daglegu lífi og eru dýrar. Í þessum hönnunarspretti leitum við leiða til að stytta framkvæmdatíma, bæta verklag og nýta tækni til að draga úr raski, spara tíma og lækka kostnað – án þess að fórna öryggi eða gæðum. 

Sprettinn leiðir Heimir Tryggvason, sérfræðingur í nýsköpun og tækniþróun hjá Veitum. 

Fitulaus fráveita:

Hvernig getum við komið í veg fyrir að fita endi í fráveitunni – og breytt úrgangi í auðlind? 

Fita í fráveitukerfum veldur vandræðum. Hún getur valdið stíflum og er kostnaðarsöm fyrir samfélagið og umhverfið. Í dag er hún fleytt af og brennd – en við getum gert betur. Hönnunarspretturinn snýst um að finna leiðir til að draga úr fitu í fráveitunni og umbreyta henni í verðmæta auðlind. 

Sprettinn leiðir Egill Maron Þorbergsson, sérfræðingur í nýsköpun hjá Orkuveitunni. 

Orkuvitund:

Hvernig getum við aukið skilning fólks á orku og orkunotkun sinni og hvatt það til að nýta hana á skynsaman hátt? 

Margir vita lítið um eigin orkunotkun – og það getur verið kostnaðarsamt. Orka fer til spillis, gömul raftæki éta rafmagn og varmi nýtist illa á heimilum. Þetta þýðir hærri orkureikning fyrir fólk og aukið álag á orkuinnviði. Í þessum hönnunarspretti skoðum við hvernig við getum hvatt almenning, fyrirtæki og stofnanir til að fylgjast með, læra og nýta orku á skynsamari hátt. 

Sprettinn leiðir Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna.  

Tenging til framtíðar:
Hvernig samhæfum við veituinnviði og uppbyggingaráform
 

Hvernig tryggjum við að vatn, rafmagn og fráveita séu til staðar þegar stór hús og ný hverfi rísa? 

Hvernig tryggjum við að veituinnviðir eins vatn, rafmagn og fráveita séu tekin inn í dæmið í upphafi verkefna þegar stór hús og ný hverfi rísa? 

Stundum eru byggingaráform komin í ferli án þess að tryggt sé að innviðir fylgi með – að næg orka, vatn og fráveita séu í boði. Þetta getur leitt til tafar, aukins kostnaðar og lélegrar upplifunar fyrir íbúa. Í þessum hönnunarspretti leitum við leiða til að samhæfa áætlanir sveitarfélaga, framkvæmdaaðila og Veitna svo innviðir séu alltaf skrefi á undan og í takti við vöxt borgarinnar – með sjálfbærni og hagkvæmni að leiðarljósi. 

Sprettinn leiðir Margrét María Leifsdóttir, sérfræðingur í viðskiptastýringu hjá Veitum 

Fráveita framtíðarinnar //   Flushing to the future: Ef við gætum byrjað frá grunni – hvernig myndum við hanna fráveitukerfi framtíðarinnar? 

Í dag notum við hreint vatn til að sturta niður – dýrmæt auðlind sem ætti ekki að enda í skólptanki. Skólpið er flutt langar leiðir, regnvatn blandast við það og einnig hreint vatn úr ofnum heimilanna. Nútíma fráveitukerfi eru orkufrek, vatnssóun mikil og lausnirnar oft úreltar. 

En hvað ef við myndum hanna kerfið upp á nýtt? Kerfi sem þjónar fólki og náttúrunni. Í þessum hönnunarspretti förum við alla leið: skoðum hvernig fráveita framtíðarinnar gæti litið út – án óþarfa vatnsnotkunar, með skilvirkari flutningum, snjallri nýtingu auðlinda og sjálfbærri sýn. Sprettinn leiðir Megan Elizabeth Wiegmann, rekstrarstýra fráveitu hjá Veitum.  

Nánari upplýsingar um Nýsköpunarfestivalið, fyrirlesara og spretti er að finna á vef Veitna: Nýsköpunarfestival.is

Dagskrá-fréttamynd

Hvernig getum við aðstoðað þig?