Breytingarnar hafa í för með sér að meðalheimilið (100 m2 íbúð) greiðir 453 kr. meira á mánuði fyrir heitt og kalt vatn og fráveitu eða 5.432 kr. á ári.
Raforka
Gjöld vegna dreifingar og önnur gjöld raforku hækka um 4%. Þá er hækkun á flutningsgjaldi um 6,3% en jöfnunargjald helst óbreytt.
Rétt er að taka fram að verð fyrir raforkudreifingu er oft um helmingur rafmagnskostnaðar heimila. Aðrir liðir á rafmagnsreikningnum eru flutningsgjald sem Landsnet fær og svo opinber gjöld, jöfnunargjald og virðisaukaskattur. Söluhluti rafmagns kemur fram á reikningi frá söluaðila.
Heitt vatn
Verðskrá Veitna fyrir heitt vatn hækkar um 7,06%.
Kalt vatn
Vatnsgjald í Reykjavík og Akranesi lækka um 5% og 1% í Stykkishólmi en hækkar um 6,7% í Grundarfirði. Þá hækkar vatnsgjald í Borgarbyggð, Úthlíð og Álftanesi um 10,48% og byggist sú hækkun á breytingum á byggingavísitölu. Þá hækka notkunargjöld fyrirtækja um 1,75% í samræmi við byggingarvísitölu.
Fráveita
Álögð fráveitugjöld verða óbreytt.
Almenn þjónustugjöld hjá Veitum hækka um 9,41%.

Við þurfum á öllum núverandi vatnsbólum að halda og síðar fleiri til. Núverandi vatnsból munu því ekki víkja fyrir nýjum heldur verða áfram grunnur vatnsöflunar samhliða uppbyggingu nýrra vatnstökusvæða.
Veitur, Landsnet og Norðurorka í samvinnu við utanríkisráðuneytið hafa tekið höndum saman til að styðja við endurreisn og rekstur raforkukerfa í Úkraínu.