Borað í Skammadal og vöktun á vatni

Veitur bora eftir heitu vatni fyrir íbúa á höfuðborgarsvæðinu

Borsvæðið í Skammadal

Nýlega hófu Veitur borun á holu í Skammadal til nýtingar fyrir hitaveituna á höfuðborgarsvæðinu, þar á meðal hitaveituna sem tengir vaxandi byggð í Mosfellsbæ. Það er fyrsta holan af sjö sem á að bora í Skammadal og á Reykjum á þessu ári.

Svæðið er þekkt lághitasvæði sem ríkt er af heitu vatni og það er mat auðlindasérfræðinga Veitna og færustu ráðgjafa að svæðið geti gefið meira en það gerir í dag. Mikilvægt er þó að borholurnar séu dreifðar um svæðið og ekki sé borað of nálægt núverandi holum.

Tímabundin losun í Varmá

Kalda vatnið sem borinn þarf til að bora er losað í skurð og Skammadalslæk eftir að hafa farið í gegnum hreinsun. Það sameinast síðar Varmá. Með vatninu sem kemur upp úr holunni með bornum, berst sandur og svarf sem eru náttúruleg efni. Gerðar eru ráðstafanir til að fanga sem mest af grugginu úr vatninu áður en það er losað í stokkinn, en hluti af allra fínasta efninu berst alla leið í ána.

Náttúrulegur leir sem borinn notar að auki er umhverfisvænn, en hann, ásamt borsvarfinu, getur litað vatnið í læknum og ánni tímabundið.

Fínefnið sem berst með þessum hætti í ána er náttúruleg bergmylsna og af svipuðum toga og annað grugg sem kemur í ána, t.d. í leysingum eða stórrigningum.

Vel fylgst með ánni

Meðan á borun stendur er fylgst með ánni sem tekur við vatninu eftir borun og það er gert bæði á landi og með flygildi (dróna) úr lofti. Lífríki við og í ánni fær að njóta vafans og Veitur eru að bæta við síun til að takmarka enn frekar borsvarfið sem fer frá svæðinu.

Veitur eru í góðu sambandi við Heilbrigðiseftirlitið og fyrstu helgina í maí barst óvenju mikið grugg í ána. Borun var því stöðvuð í vikunni á meðan frekari ráðstafanir voru gerðar til að hreinsa vatnið betur.

Léttara kolefnisspor

Borinn sem notaður er í Skammadal er tengdur rafdreifikerfinu og er því ekki að nota díselknúna rafstöð eins og algengt er.

Uppfært 22.5.2026: Veitur eru að útbúa svarfþró í Skammadal til að ná enn betur fínefnum sem koma upp með bornum. Þróin verður tilbúin í næstu viku. Framkvæmdin er afturkræf og gengið verður frá svæðinu í lok borana á svæðinu. Svarfið sem kemur upp með bornum er eðlilegt og eru náttúruleg efni. Grófasta efnið síast frá en fínna efnið reynist oft erfiðara viðfangs og Veitur eru að gera allt sem hægt er til að ná því betur áður en það fer í Skammadalslæk og Varmá. Veitur munu áfram fylgjast vel með læknum og ánni, úr lofti og á jörðu niðri. Mælar eru staðsettir í ánni sjálfri og sýni tekin úr vatninu.

Tengdar fréttir
https://www.veitur.is/frettir/borad-eftir-heitu-vatni-ar-jardhitaleitar-hja-Veitum 

https://www.veitur.is/frettir/bora-eftir-heitu-vatni-a-reykjum  

Hvernig getum við aðstoðað þig?