Um verkefnið: Laga þarf sig í fráveitulögn meðfram Snæfellsnesvegi. Lagðar verða nýjar lagnir yfir veginn til móts við Steypustöðina.
Vatnslögn verður endurnýjuð á kafla til að fyrirbyggja frekari bilanir.
Lagnir liggja á miklu dýpi á þessu svæði og því verður vinnusvæðið fremur viðamikið. Þrenging verður á veginum við vinnusvæðin og umferð beint framhjá þeim.
Lögð er áhersla á öryggi vegfarenda og starfsfólks við vinnusvæðið.
Uppfært 29.10.2024: Vinna gengur vel á svæðinu, en einungis lítil svæði eru tekin í einu til að tryggja að stórir skurðir verði ekki opnir yfir háveturinn þegar erfitt er að vinna í lögnum.
Uppfært 10.9.2024: Vinna er hafin við fyrsta áfanga. Áhersla er lögð á að framkvæmt sé í smærri áföngum til að tryggja að skurðir séu ekki opnir yfir vetrartímann þegar ekki er hægt að vinna í þeim.
Vinnusvæði: Samsíða Snæfellsnesvegi og yfir veginnnn á tveimur stöðum.
Tímaáætlun: Júní til október 2024.
Verkefnastjóri: Sigríður Sif Magnúsdóttir
Samskipti: Silja Ingólfsdóttir hjá þjónustu Veitna