- .
Veitur leggja nýja strengi fyrir rafmagn
Veitur leggja nýjar lagnir rafmagns á staðnum til að tryggja öllum íbúum nauðsynlega innviði og lífgæði til framtíðar.
Rafstrengur verður lagður frá dreifistöð við Hallgerðargötu 21-23. Þar verður gatan þveruð í stuttan tíma, en reynt verður að komast hjá því að loka alveg fyrir umferð á meðan. Bílastæði meðfram vinnusvæðinu verða ekki aðgengileg á meðan vinnu stendur.
Þvera þarf götuna til móts við nýbygginguna, en án þess að loka þurfi götunni. Öryggi vegfarenda og starfsfólks verður í fyrirrúmi.
Áætlað er að verkið taki um tvær vikur.