Miðbær Hafn­ar­fjarðar

- .

Veitur eru að hefja framkvæmdir vegna endurnýjunar á hitaveitu í Austurgötu, Mjósundi, Strandgötu og Fjarðargötu.

Verkefnið: Veitur eru að hefja framkvæmdir vegna endurnýjunar á hitaveitu í Austurgötu, Mjósundi, Strandgötu og Fjarðargötu. Upphafið á verkefninu má rekja til þess að tengja þarf hitaveitu við fyrirhugaða nýbyggingu á Strandgötu 26-30. Tækifærið verður notað og lagnir endurnýjaðar sem eru komnar til ára sinna. Tengt verður við núverandi hitaveitulögn í Austurgötu og ný lögn lögð eftir Mjósundi, yfir Strandgötu og að Fjarðargötu. Við Austurgötu verður ónýtur hitaveitubrunnur fjarlægður og lagnakerfið tengt upp á nýtt.

Áætlaður verktími er frá 26. september 2022 til áramóta 2022/2023.

Verkefnastjóri Veitna: Sveinbjörn Hólmgeirsson

Hvernig getum við aðstoðað þig?