- .
Veitur eru að lagfæra við dreifistöðina að Rauðalæk
Kæru íbúar
Veitur eru að lagfæra háspennu- og lágspennustrengi við dreifistöðina að Rauðalæk 11. Sú vinna mun standa yfir fram í miðjan desember og er skurður næst dreifistöðinni. Þá er búið að takmarka umferð gangandi og hjólandi næst vinnusvæðinu. Meiri umferð en vanalega getur myndast á svæðinu. Vinnan er mikilvægur hlekkur í að tryggja íbúum á höfuðborgarsvæðinu rafmagn til framtíðar.
Með kveðju, starfsfólk Veitna