Veitur tengja nýjar lagnir í Eddufelli. Verkið er unnið í tveimur hlutum. Annars vegar þarf að grafa í bílastæði austan megin við Eddufell 2-6 dagana 21.-22. mars. Sett er í forgang að halda opnu bílastæði fyrir hreyfihamlaða. Skurðinum verður að mestu lokað fyrir helgina, en þó verðum við að halda opinni tengiholu fjærst húsi nr. 2-6 til að geta tengt lagnir við kerfið strax eftir helgina.
Á næstunni verður síðan grafið vestan megin við hús númer 2-6. Þar má gera ráð fyrir að einhver bílastæði verði óaðgengileg og göngustígur þveraður. Settar verða upp hjáleiðir fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur á svæðinu.
Ef Veitur þurfa að loka fyrir vatn og/eða rafmagn á svæðinu verður það tilkynnt sérstaklega og með fyrirvara.