Verkefni: Verkið felur í sér endurlagningu dreifilagnar að Grensásvegi 1, lagnastæðið er í grassvæði milli Skeifunar 3 og Suðurlandsbrautar.
Helstu verkþættir eru lagning hitaveitu (framrás og bakrás) ásamt tilheyrandi jarðvinnu og frágangi.
Verkefnið hefur ekki áhrif á akandi umferð en getur haft áhrif á gangandi og hjólandi umferð.
Vinnusvæði: Lagnastæðið er í grassvæði milli Skeifunar 3 og Suðurlandsbrautar.
Tímabil: Áætlaður framkvæmdatími er 15. júní til 4. ágúst 2023
Verkefnastjóri Veitna: Hákon Róbert Jónsson
Samskipti varðandi framkvæmdina: Silja Ingólfsdóttir á þjónustusviði Veitna
Verktaki: Þróttur Verktakar