Gátlistar fyrir umsóknir heimlagna

Mikilvægt er að skila aðeins þeim upplýsingum og gögnum sem beðið er um, öll frávik frá því tefja umsóknarferlið. Ekki er heimilt að skila heilum teikningasettum. 

Heimlagnaumsókn - Rafmagn

Upplýsingar og gögn sem skal skila við umsókn.

Mikilvægt er að skila aðeins þeim upplýsingum og gögnum sem beðið er um, öll frávik frá því tefja umsóknarferlið. Ekki er heimilt að skila heilum teikningasettum.

Almennt

Með öllum umsóknum þurfa að fylgja almennar upplýsingar um afhendingarstað heimlagnar og greiðanda.

Skila skal eftirfarandi upplýsingum með öllum umsóknum:

  • Heimilisfang verkstaðar
  • Póstnúmer
  • Landsnúmer – matshluti*
  • Kennitala greiðanda
  • Netfang greiðanda
  • Nafn tengiliðs
  • Netfang tengiliðs
  • Símanúmer tengiliðs
  • Tegund mannvirkis

*ATH hægt er að leita í fasteignaskrá í umsókn og þá fyllist sjálfkrafa út, heimilisfang, póstnúmer og landsnúmer – matshluti.

Ný heimtaug

Upplýsingar:

  • Stærð heimtaugar - sjá viðmiðunartöflu
  • Fjöldi fyrirhugaðra sölumæla
  • Upplýsingar hvort vinnuskúr sé á verkstað sem þurfi að aftengja

Gögn:

  • Afstöðumynd sem sýnir hvar heimlagnir koma inn í hús
  • Grunn- og sniðmynd sem sýnir hvar inntaksrými er í húsi, hvar og hvernig heimlagnir koma inn í það.
  • Einlínumynd af aðaltöflu
  • Einföld útlitsmynd af aðaltöflu fyrir heimtaugar 200A og stærri
    • Sem sýnir hvernig heimtaug kemur inn í töflu, staðsetningu aðalrofa, straumspenna og mæla
  • Afláætlun fyrir heimtaugar 315A og stærri
  • Þjónustubeiðni rafverktaka - skilað í gegnum gátt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar
    • Þarf ekki að skila inn með umsókn en þarf að hafa borist fyrir spennusetningu
    • Við uppsetningu á fleiri en einum mæli skal skila inn töflu yfir alla mæla

Stækkun á heimtaug

Við stækkun á heimtaug þarf ávallt að leggja nýja heimtaug og því fylgir stækkun sama ferli og ný heimtaug.

Upplýsingar:

  • Stærð heimtaugar - sjá viðmiðunartöflu
  • Fjöldi fyrirhugaðra sölumæla
  • Upplýsingar hvort vinnuskúr sé á verkstað sem þurfi að aftengja

Gögn:

  • Afstöðumynd sem sýnir hvar heimlagnir koma inn í hús
  • Grunn- og sniðmynd sem sýnir hvar inntaksrými er í húsi, hvar og hvernig heimlagnir koma inn í það