Nýsköp­un­ar­festival Veitna

Veitur standa fyrir nýsköpunarfestivali í Elliðaárstöð 3.-4. júní í samvinnu við Frumkvöðlasetur Orkuveitunnar.

Taktu þátt í nýsköpun og samstarfi

Veitur halda sitt fyrsta nýsköpunarfestival 3.-6. júni þar sem hópur skapandi fólks tekst á við áskoranir í orku- og veitumálum. Viðgangsefnin snerta okkur öll, samfélagið í heild sinni og komandi kynslóðir. Ef þú vilt taka þátt í að finna skapandi lausnir sem tryggja aðgengi að rafmagni, hita, hreinu vatni og fráveitu. Með nýsköpun og samstarfi veitum við lífsgæði til framtíðar. Skráðu þig til leiks!

Leysum saman stórar áskoranir á stuttum tíma

Við vinnum eftir hugmyndafræði hönnunarspretta (e. design sprints) en með þeim er hægt að leysa stórar áskoranir á stuttum tíma með því að vinna saman, nota sköpunarkraftinn, rökhugsun og snerpu.Framundan eru fimm áskoranir og taka um 20 manns þátt í hverjum spretti

Askoranir-spretta-1

Norhumbrian Waters Innovation festival fyrirmyndin

Fyrirmynd nýsköpunarfestivalsins má rekja til Northumbrian Waters Innovation festival í Newcastle, sem er eitt stærsta veitu tengda nýsköpunarfestival í heiminum. Nýsköpunarteymið hjá Northumbrian Waters veittir ráðgjöf við undirbúning festivalsins

Dagskrá Tengjum 2025

3. júní
4. júní
5. júní
6. júní
Af stað – Skiljum vandamálið
Hugmyndavinna
Frumgerð og prófun / Lokahátíð
Lyfturæða
Opnun Tengjum 2025. Tengslamyndun og keyrum af stað spretti. Fyrsta stopp: Skiljum vandamálið. Innsýn sérfræðinga.Þankahríð, þróun hugmynda og kjósum bestu hugmyndina.Fimm hönnunarsprettir eru haldnir til að hvetja sköpunargáfu og nýsköpun. Lokahátíð: Opinn viðburður í Elliðaárstöð 5. júní kl. 17-19.Sprettleiðtogar kynna niðurstöður fyrir framkvæmdastjórn, tryggja framgang hugmynda.

Spurt og svarað

  • Hvað er Nýsköpunarfestival Veitna?

    Nýsköpunarfestival Veitna og Frumkvöðlaseturs Orkuveitunnar í Elliðaárstöð er 4 daga nýsköpunarhátíð þar sem um 100 manns koma saman til að leysa áskoranir sem tengjast orku og veitumálum. Á hátíðinni eru keyrðir fimm sprettir og þátttakendur taka þátt í skemmtilegri dagskrá og frá innblástur frá skapandi fólki. Andi nýsköpunar, gleði og skemmtunar mun svífa yfir vötnum í Elliðaárstöð og er stefnan á að þetta verði skemmtilegasta vinnuvika ársins!

    Tökumst á við á raunverulegar áskoranir í orku- og veitumálum með samvinnu og sköpunarkraftinn að vopni.

  • Hver getur tekið þátt?

    Fjölbreyttur hópur fólks frá Orkuveitunni og dótturfyrirtækjum, samstarfsaðilar, fólk úr orkugeiranum, fagfólk, hönnuðir, listafólk, háskólanemar, verktakar, stjórnsýsla, frumkvöðlar taka þátt. Vilt þú vera með?  Skráðu þig hér.

  • Af hverju Nýsköpunarfestival?

    Með því að vinna saman og leiða saman fjölbreyttan hóp er hægt að leysa raunverulegar áskoranir á stuttum tíma. Við vonumst til að niðurstaða sprettanna verði að raunverulegum verkefnum innan Veitna og Orkuveitunnar og séu raunverulegar lausnir við áskorunum sem við stöndum frammi fyrir.

    Það er mikilvægt fyrir viðskiptavini og veitukerfin.

    Aukum samvinnu, virkjum sköpunarkraftinn og stækkum tengslanetið.

    Orkuveitan og Veitur eru þekkt fyrir það að leysa vandamál og má segja að nýsköpun sé í DNA-i fyrirtækjanna.

  • Hvað er hönnunarsprettur?

    Hönnunarsprettur (e. design sprint) er aðferð sem notuð er til að finna lausnir og þróa vörur á stuttum tíma. Aðferðin er þróuð af Jake Knapp og er farið í gegnum fimm skref frá skilningi vandamáls til prótótýpu á mjög stuttum tíma.

    Sérfræðingar eru fengnir að borðinu og kynna efnið fyrir þátttakendum og er lögð áhersla á lýðræðisleg vinnubrögð þar sem bestu hugmyndirnar eru kosnar áfram og haldið áfram að vinna með þær.

    Afrakstur hönnunarspretts er einhversskonar prótótýpa sem er prófuð af notendum.

    Í lok festivals verða lausnirnar kynntar og munu að minnsta kosti 2 verkefni verða fjármögnuð og komið til framkvæmda.