Vel heppnuð heita­vatns­hola í Kaldár­holti

Verður kærkomin viðbót við Rangárveitu

Borinn í Kaldárholti sem North Tech Drilling notaði. Í forgrunni sjást stálrör sem notuð eru í vinnslufóðringu holunnar. Vinnslufóðringin tryggir að kalt grunnvatn komist ekki inn í holuna.

Í júlí var ný heitavatnshola boruð í Kaldárholti í Rangárþingi Ytra. Þar eru fyrir tvær vinnsluholur nýttar eru fyrir Rangárveitu.

Nýja holan (KH-39) er um 800 metra djúp, eða 300 metrum dýpri en holurnar sem fyrir voru. Niðurstöður fyrstu prófana á holunni benda til þess að hún sé á pari við holurnar sem fyrir eru. Þær afkasta, hvor um sig, um 50 lítrum á sekúndu af 65°C heitu vatni.

Hvað tekur nú við?
Frekari prófanir á holunni verða nú gerðar og ef niðurstöður lofa áfram góðu þá verður holan virkjuð. Það þýðir að dæla er sett ofan í holuna til að ná vatninu upp á stöðugan og öruggan máta.

Virkjun holunnar eykur strax rekstraröryggi í Rangárveitum þannig að ef eitthvað bilar í eldri holunum þá nýtist hún sem varaafl.

Til að hægt sé að tengja meira vatn frá Kaldárholti til íbúa á svæðinu þá þarf þó að auka flutningsgetuna með sverari lögnum og slíkt tekur lengri tíma.

Við hjá Veitum erum hæstánægð með árangurinn í Kaldárholti.

Svarfþrærnar sem gripu borvatnið, kældu það og felldu út bergmulninginn áður en það var endurnýtt í borun