
Veitur hefja í apríl vinnu undir Borgarfjarðarbrú þar sem endurnýja og stækka á lagnir fyrir kalt og heitt vatn fyrir vaxandi samfélag í Borgarnesi. Framkvæmdin er samstarf Veitna, Rarik og fjarskiptafyrirtækjanna Mílu og Ljósleiðarns. Áætlað er að verkinu ljúki í nóvember á þessu ári.
Borgarfjarðarbrúin er lengsta brú landsins, 520 metrar, og lagnir fyrir ómissandi innviði fyrir Borgarnes eru undir brúnni.
Veitur leiða verkið og það hefur verið í undirbúningi um þó nokkurt skeið. Kaldavatnslögnin flytur neysluvatn fyrir Borgarnes frá vatnstökusvæðinu á Seleyri, en þar stendur endurnýjun á dælubúnaði og mannvirkjum yfir.
Heitavatnslögnin flytur vatn til húshitunar í Borgarnes og er tengd við Deildartunguæð sem er lengsta stofnæð hitaveitu á landinu. Deildartunguæð, betur þekkt sem HAB lögnin, nær tæpa 70 km frá Deildartunguhver að Akranesi.
Óvenjuleg vinnuaðstaða
Lagnirnar, ásamt strengjum Rariks og fjarskiptafyrirtækjanna, liggja undir Borgarfjarðarbrúnni. Aðstæður til framkvæmda undir brúnni eru töluverð áskorun fyrir verktaka, þar er takmarkað athafnasvæði og áhættusamt að vinna. Yfir vinnusvæðinu er þjóðvegur 1 og brúin hreyfist með umferðinni. Undir lögnunum er straumharður sjórinn sem fylgir flóði og fjöru á þröngu svæðinu undir brúnni.
Öryggismál eru ávallt forgangur hjá Veitum. Öll sem starfa fyrir Veitur eiga að koma heil heim og kröfurnar eru því miklar á verktaka að vanda til verka, hafa áætlanir og viðbragð í lagi.

Bráðabirgðalagnir við þjóðveg á Borgarfjarðarbrúnni
Til að tryggja að Borgarnes sé tengt nauðsynlegum innviðum á meðan vinnu stendur þarf að leggja bráðabirgðalagnir fyrir byggðina og þeim verður einungis komið fyrir uppi á brúnni sjálfri.
Á meðan Veitur setja bráðabirgðalagnir verður einstefna á þjóðvegi 1 yfir brúna með umferðarljósum og hraði minnkaður. Það er til að tryggja öryggi bæði vegfarenda og starfsfólks á brúnni. Sú vinna hefst í lok apríl og stendur fram í júní. Þegar lagnavinnu lýkur í október verða bráðabirgðalagnirnar fjarlægðar að nýju og á meðan því stendur verður umferð takmörkuð að nýju.
Minni hraði fyrir meira öryggi
Þegar vinna hefst undir brúnni verður opnuð að nýju tvístefna á veginum en hraði takmarkaður. Það er gert til að minnka hreyfingar á brúnni til að þau sem vinna við lagnirnar geti athafnað sig af öryggi og tryggt góða lagnavinnu.
Veitur tengja vaxandi samfélag í Borgarnesi við ómissandi innviði í samstarfi við Rarik og fjarskiptafyrirtækin.

Ómissandi innviðir fyrir vaxandi samfélag í Borgarnesi endurnýjaðir

Nú er loðnuvertíðin fram undan á Akranesi með tilheyrandi aukningu á vatnsnotkun. Í ár kemur vertíðin hins vegar inn í óvenju langa þurrkatíð, sem gerir vatnsbúskap bæjarins viðkvæmari en ella.