Við hjá Veitum sendum út þjónustukönnun á næstunni á úrtak viðskiptavina sem eru skráðir með netfang hjá okkur. Í þetta sinn erum við að leita eftir viðhorfi og upplifun þeirra sem eru í forsvari fyrir sveitarfélög, húsfélög, stofnanir og fyrirtæki.
Við hvetjum öll til að taka þátt og hafa áhrif á þjónustu Veitna.
Ein af lykiláherslum Veitna er að vera fyrri til að mæta þörfum þeirra sem við þjónustum. Við leitumst við að hafa frumkvæði að réttum lausnum með kvikri og áreiðanlegri þjónustu.
Til að vita hvar við stöndum þurfum við aðstoð sem flestra.
Könnunin er gerð af Prósent fyrir Veitur, það tekur um 5-7 mínútur að svara henni og fullum trúnaði heitið.
Við hlökkum til að heyra frá sem flestum hvernig við getum gert enn betur.