Verð fyrir raforkudreifingu er oft um helmingur rafmagnskostnaðar heimila til móts við raforkusölu sem er tilgreind á reikningi frá raforkusala. Gjöld fyrir raforkudreifingu skiptast svo í gjöld til Veitna, flutningsgjaldið sem Veitur innheimta fyrir Landsnet og svo jöfnunargjald og virðisaukaskatt.
Gjöld vegna dreifingar rafmagns hækka um 3,97% og jöfnunargjald hækkar úr 0,52 kr/kWh í 1,01 kr/kWh . Jöfnunargjaldið er breytt sbr. breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr. 98/2004.
Breytingarnar hafa í för með sér að 100m2 íbúð sem dæmi greiðir í heild sinni rúmar 400 krónur meira á mánuði, 182 kr fyrir rafmagnsdreifingu og 225 kr fyrir jöfnunargjaldið sem Veitur innheimta fyrir ríkissjóð.
Sundurliðuð hækkun fyrir 100 m2 íbúð
- Mánaðarlega 407 kr. (dreifing 182 kr. og jöfnunargjald 225 kr.)
- Árlega 4886 kr. (dreifing 2.186 kr. og jöfnunargjald 2.700 kr.)
Aðrar breytingar verða ekki fyrir heimilin, einungis fyrirtæki.
Kalt, heilnæmt vatn
Notkunar og tengigjöld fyrirtækja fyrir kalt og heilnæmt vatn hækka á þriggja mánaða fresti samkvæmt byggingarvísitölu o ghækkunin nú er 0,55%.
Vatnsgjöld heimila verða ekki fyrir áhrifum á þessu.
Stækkandi samfélag kallar á öflugt viðhald og miklar nýframkvæmdir til að mæta aukinni orkuþörf. Til að tryggja komandi kynslóðum örugga afhendingu og tengingu við rafmagn þarf að gera breytingar á gjaldskrá svo að íbúar og fyrirtæki á öllu veitusvæðinu njóti þessara ómissandi lífsgæða til framtíðar.

Endurnýjun og uppbygging innviða er brýnasta viðfangsefni vatnsgeirans í Evrópu samkvæmt könnun EurEau, samtaka vatnsveitna og fráveitna í 33 Evrópulöndum.
.jpg?width=3840&quality=75&branch=main)
Verður kærkomin viðbót við hitaveituna í Þorlákshöfn