Borað eftir heitu vatni í Skammadal

Með vatninu frá bornum berst náttúruleg bergmylsna.

Það eru tvær vikur eftir af borun á holunni sem nú er verið að bora í Skammadal. Í heildina verða boraðar 4 vinnsluholur til viðbótar á þessu svæði fram á haust. Meðan á borun stendur er fylgst vel með ánni sem tekur við vatninu eftir borun og það er gert bæði á landi og með dróna úr lofti. Lífríki við og í ánni fær að njóta vafans og unnið er í góðri samvinnu við Umhverfis- og orkustofnun og sveitarfélagið.

Við skiljum vel að það vekji áhyggjur þegar litabreyting verður á ánni. Með vatninu sem kemur upp úr holunni með bornum, berst mjög fínn sandur. Gerðar eru ráðstafanir til að fanga sem mest af grugginu úr vatninu áður en það fer í ána, en hluti af allra fínasta efninu getur borist alla leið og valdið þessum litaáhrifum. Fínefnið sem berst með þessum hætti í ána er náttúruleg bergmylsna og af svipuðum toga og annað grugg sem kemur í ána, t.d. í leysingum eða stórrigningum.

Við brugðumst strax við og höfum útbúið stóra svarfþró í Skammadal til að ná enn betur fínefnunum. Á meðan þróin er að klárast höfum við stöðvað borun og veitt vatni í þróna til að hún verið tilbúin til að taka við vatninu frá bornum. Svarfþróin mun nýtast við borun á næstu holum á svæðinu. Næstu daga mun þó berast mold úr svarfþrónni í lækinn og ána og lita brún.

Borunin er hluti af mikilvægri jarðhitaleit til að tryggja heitt vatn fyrir vaxandi samfélag. Borað er með rafmagnsbor sem dregur verulega úr loftslagsáhrifum.

Umfangsmesta jarðhitaleit í 50 ár

Veitur eru nú í umfangsmikilli jarðhitaleit, þeirri mestu í um 50 ár, til að styðja við vaxandi samfélag, mæta mannfjölgun og efla áfallaþol grunninnviða. Í átakinu er stefnt á að bora 29 holur á komandi árum, þar af 15 holur í ár. Eitt af markmiðum Veitna er að draga úr áhrifum starfsemi sinnar á loftslagið og því er borað með rafmagni þar sem því verður komið við, annars verður notast við lífdísel (VLO) sem dregur úr losun um allt að 90% miðað við notkun díselolíu. Áætlaður samdráttur losunar sem á að nást í ár með notkun rafmagns og lífdísels til borunar er um 3000 tonn CO2 ígildi, sem samsvarar 16-faldri losun bílaflota Veitna.

Tengdar fréttir

Borað í Skammadal og vöktun á vatni

Umfangsmesta leit að heitu vatni í 50 ár