Veðurspár benda til mikillar kuldatíðar í vikunni ásamt vindi sem mun hafa áhrif á afhendingu á heitu vatni sérstaklega á svæði Rangárveitna. Rangárveitur sjá Rangárþingi ytra, Rangárþingi eystra og Ásahreppi fyrir heitu vatni og munum við þurfa að skerða heitt vatn til ákveðinna stórnotenda þar. Það þýðir að sundlaugarnar á Laugalandi, Hellu og Hvolsvelli verða lokaðar frá og með miðvikudeginum 14. desember á meðan á kuldakastinu varir. Vonandi mun þetta ganga yfir á nokkrum dögum.
Sem fyrr hvetjum við fólk almennt, en þó sérstaklega á svæði Rangárveitna, til að fara vel með heita vatnið, ekki kynda híbýli sín óþarflega mikið og hafa glugga lokaða.
.jpg?width=3840&quality=75&branch=main)

Nú er loðnuvertíðin fram undan á Akranesi með tilheyrandi aukningu á vatnsnotkun. Í ár kemur vertíðin hins vegar inn í óvenju langa þurrkatíð, sem gerir vatnsbúskap bæjarins viðkvæmari en ella.

Það er einfaldlega komið að okkur að sýna sömu framsýni og fyrri kynslóðir gerðu, til að tryggja heitt vatn til allra í dag og fyrir næstu kynslóðir.