Vatnsvernd og áskoranir við vatnsöflun, öryggi og áfallaþol vatnsveituinnviða var til umfjöllunar á opnum fundi Samorku, Verndum vatnið, á Hilton Reykjavík Nordica miðvikudaginn 22. október. Vatnsveitur eru dæmi um grunnþjónustu í samfélaginu sem við getum einfaldlega ekki verið án.
Á fundinum var veitt góð innsýn inn í þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir á þessu sviði og hvernig hægt er að takast á við þær.
Jón Gunnarsson, verkefnastjóri greininga hjá Samorku sýndi fram á vatnsríkidæmi okkar Íslendinga en líka hvað við notum vatn ótæpilega miðað við nágrannaþjóðir á hinum Norðurlöndunum.
Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastýra Veitna og formaður stjórnar Samorku lagði áherslu á mikilvægi þess að standa vörð um vatnsbólin og útivistarmöguleika í Heiðmörk með deiluskipulagi og áhættumati.
Glúmur Björnsson jarðfræðingur sagði síðan frá áskorunum sem HEF veitur standa frammi fyrir við vatnsöflun á Austurlandi.
Tor Gunnar Jantsch, sviðsstjóri hjá Oslo Vann – vatnsveitu Oslóarborgar – flutti loks mjög athyglisvert erindi um mikilvægi þess að tryggja vatnsöflun fyrir borgarbúa og hvernig nýjar ógnir kalla á auknar öryggisráðstafanir til að vernda þessa innviði.
Í pallborði sagði Runólfur Þórhallsson, yfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, mikilvægt að skilgreina vel þessa ómissandi innviði, þá sem við getum ekki verið án í 24 tíma, og setja stíft regluverk um þá. Það blasi við að það þurfi að tryggja að vatnsból séu örugg og tók heilshugar undir viðmið Veitna í Heiðmörk.
Kristinn Harðarson framkvæmdastjóri framleiðslusviðs HS Orku ræddi meðal annars vatnsból fyrirtækisins á miðju jarðhræringasvæði og hvernig baráttan við eldgos hefur hjálpað til við að vera undirbúinn fyrir áföll.
Marianne Jensdóttir Fjeld, verkefnastjóri stjórnar vatnamála hjá Umhverfis- og orkustofnun ræddi meðal annars um hvernig grunnvatn er á höndum og ábyrgð margra aðila í stjórnsýslunni; Umhverfis- og orkustofnun, Heilbrigðiseftirlit, sveitarfélögin, MAST, Veðurstofa Íslands og þess vegna mjög mikilvægt að styrkja samtal og samvinnu þessara aðila.


Nú er loðnuvertíðin fram undan á Akranesi með tilheyrandi aukningu á vatnsnotkun. Í ár kemur vertíðin hins vegar inn í óvenju langa þurrkatíð, sem gerir vatnsbúskap bæjarins viðkvæmari en ella.

Það er einfaldlega komið að okkur að sýna sömu framsýni og fyrri kynslóðir gerðu, til að tryggja heitt vatn til allra í dag og fyrir næstu kynslóðir.