Kjal­arnes komið með heitt vatn og nýja lögnin er tengd

.

Information in English below

Uppfært 20:48: Áhleypingu er lokið, enn gæti verið aðeins minni þrýstingur hjá íbúum en það lagast fljótt.
Uppfært kl. 18.30:
Tengingum er lokið á lögninni og heita vatnið byrjað að renna. Það verður að gerast hægt og rólega og því byggist þrýstingurinn upp smám saman.
Uppfært kl. 15.55:
Vinna gengur enn vel og stóráfallalaust og tímaáætlun ætti að haldast.
Uppfært kl. 13.05:
Vinna við lögnina er í fullum gangi og miðar ágætlega.

Vegna tengingar á nýrri flutningsæð hitaveitu verður heitavatnslaust á öllu Kjalarnesi 13. nóvember kl. 07.00-21.00

Mikilvægt er að íbúar hafi skrúfað fyrir krana til að koma í veg fyrir slys og tjón þegar vatnið kemur á aftur.  

Við bendum húseigendum á að huga að sínum innanhússkerfum. Félag pípulagningameistara hefur tekið saman leiðbeiningar fyrir húseigendur. Gott er að hafa gluggana lokaða á þessum tíma til að halda varmanum inni.   

Þegar vatni er hleypt aftur á viðamikið lagnakerfi eftir lokun er eðlilegt að lekar geti komið upp. Í slíkum tilvikum er mikilvægt að tilkynna það svo hægt sé að bregðast við sem fyrst.   

Við munum upplýsa um gang mála á þessari síðu.  

Nokkrar algengar spurningar og svör varðandi lokunina  

Þarf endilega að taka allt vatnið af?  
Við skiljum vel að það komi sér illa fyrir íbúa og fyrirtæki að vera án heits vatns en því miður verður svo að vera þegar um viðamikla viðgerð er að ræða.

Hvað gerist ef vatnið er komið á hjá mér fyrir auglýstan tíma?  
Ef heita vatnið verður komið í lag fyrir þann tíma þá mun það ekki verða tekið af aftur nema óvæntar uppákomur verði.     

Hvað ef mér finnst vera lágur þrýstingur á vatninu eftir framkvæmdina?
Það getur tekið einhvern tíma að ná fullum þrýstingi aftur.  

Hvað ef heita vatnið er ekki komið á kl. 21:00 ? 
Við biðjum ykkur um að sýna því skilning og þolinmæði. Við uppfærum hér á síðunni eftir því sem fram vindur.      

Þarf að slökkva á innanhúskerfum og snjóbræðslu?  
Þar sem slík kerfi eru mörg og misjöfn getum við ekki svarað þessu almennt. Best er að hafa samband við pípara eða söluaðila kerfisins til að fá leiðbeiningar.   Félag pípulagningameistara hefur einnig tekið saman leiðbeiningar til húseigenda.

Hvar er lokað fyrir bakrásins?
Það er engin bakrás á Kjalarnesi svo sú aðgerð á ekki við á svæðinu.

Þarf að loka fyrir inntakið?
Húskerfi eru misjöfn og ef það eru innanhúskerfi til staðar er gott að skoða leiðbeiningar frá Félagi Pípulagningameistara. Ef það liggur vafi á hvað skal gera er best að heyra í pípara og fá ráðleggingar.

Hvernig er best að halda hita á húsinu á meðan það er heitavatnslaust?
Gott er að hafa alla glugga lokaða til að halda varmanum innandyra. Húsnæði ætti ekki að kólna mikið á þessum tíma árs og teppi hlýja fólki þennan tíma sem heitavatnsleysið stendur. Óhætt er að nota einn lítinn rafmagnsofn á íbúð ef nauðsyn krefur, en gott er að muna að heitavatnsleysið stendur yfir í hálfan sólarhring svo það hlýnar fljótt innandyra þegar vatnið kemur aftur á.
------------------------------

Updated at 20:48: The filling process is complete, but residents might still experience slightly lower pressure, which will resolve quickly.
Updated at 18:30: Connections on the pipeline are complete, and hot water has started flowing. This process will happen gradually, so the pressure will build up slowly over time
Updated at 15:55:
Work is still going well and without major issues, and the schedule should stay on track.
Updated at 13.05:
Work on the pipeline is in full progress and is going well.

Due to the connection of a new heating pipeline, there will be a hot water outage in all of Kjalarnes on November 13 from 7 in the morning until 21 at night.

It is important that residents turn off their taps to prevent accidents and damage when the water supply is restored.

Homeowners are advised to check their indoor systems. The Association of Master Plumbers has prepared guidelines for homeowners. It’s also a good idea to keep windows closed during this time to retain heat indoors.

When water is restored to a large system after an outage, it is normal for leaks to occur. In such cases, it is important to report them so that they can be addressed as quickly as possible.

We will provide updates on this page.

Common questions and answers regarding the outage:

Does all the water need to be shut off?
We understand that it is inconvenient for residents and businesses to be without hot water, but unfortunately, it is necessary when dealing with a large repair.

What if the water is restored earlier than the scheduled time?
If the hot water is restored earlier, it will not be shut off again unless there are unexpected issues.

What if I experience low water pressure after the work?
It may take some time to restore full pressure.

What if the hot water isn’t back on by 21:00?
We ask for your understanding and patience. We will update this page as the situation progresses.

Should I turn off indoor heating systems and snow melting systems?
Since these systems vary, we cannot give a general answer. It is best to contact a plumber or system provider for guidance. The Association of Master Plumbers has also prepared guidelines for homeowners.

Is there a need to shut off the return pipe?
There is no return pipe in Kjalarnes, so this procedure does not apply in this area.

Should I shut off the main intake valve?
Indoor systems vary, and if such systems are in place, it’s advisable to check the guidelines from the Association of Master Plumbers (in Icelandic). If there is any doubt about what to do, it’s best to consult a plumber for advice.

How can I keep my home warm during the hot water outage?
It’s a good idea to keep all windows closed to retain heat indoors. The building should not cool much at this time of year, and blankets will help keep people warm during the hot water outage. It’s safe to use a small electric heater if necessary, but remember that the outage will only last about half a day, and the house will warm up quickly once the water is restored.