UPPFÆRT 16:30
Því miður tefst verkið enn og er nú búist við vatni aftur um klukkan 20:00
UPPFÆRT 14:50
Vegna óviðráðanlegra orsaka tefst verkið og er búist við því að vatnið verði komið á að nýju klukkan 17:00
Vegna viðhalds verður kaldavatnslaust við Framnesveg og nágrenni - . Sjá nánar á korti.
Við vörum þig við slysahættu vegna þess að einungis kemur heitt vatn úr blöndunartækjum.
Þurfirðu neysluvatn meðan á kaldavatnsleysinu stendur, geturðu notað vatn úr heita krananum og kælt það. Brennisteinninn í vatninu getur valdið sumum óþægindum en er skaðlaus.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.