Rauða­lækur, Reykjavík

- .

Veitur endurnýja vatns- og fráveitulagnir

Um verkefnið: Veitur munu endurnýja vatns- og fráveitulagnir í Rauðalæk. Núverandi lagnir eru frá árinu 1955. Ekki er þörf á að endurnýja hitaveitu- og raflagnir í götunni þar sem þær lagnir voru endurnýjaðar árið 1998.
Framkvæmdasvæðið verður í götu frá götulokun að Dalbraut, en verkinu er skipt niður í smærri hluta til að takmarka vinnusvæðið hverju sinni. Fyrsti hluti verður unninn frá götulokun og framhjá gatnamótum við Brekkulæk og síðan áfram í átt að Dalbraut. Síðasti hluti verksins verður þar sem Dalbraut er þveruð í stuttan tíma.

Lagnir fráveitu og vatnsveitu liggja neðarlega í jörðu og því verður skurðurinn bæði djúpur og breiður og ekki verður hægt að aka framhjá á bílum, en hjáleiðir verða settar upp. Gangandi og hjólandi vegfarendur munu ávallt komast leiðar sinnar framhjá framkvæmdasvæðinu. Við leggjum áherslu á öryggi vegfarenda og starfsfólks á vinnusvæðum okkar.

Við áætlum að verkið taki í heild sinni um hálft ár og hefjist í vorbyrjun árið 2025. Þegar lagnir hafa verið endurnýjaðar verður gengið frá yfirborði.

Vinnusvæði: Sunnanmegin í Rauðalæk, frá gatnalokun og yfir Dalbraut. Unnið verður í minni hlutum hverju sinni.

Tímaáætun: Mars til október 2025.

Verkefnastjóri Veitna: Auður Guðríður Hafliðadóttir

Samskipti vegna framkvæmda: Silja Ingólfsdóttir hjá þjónustu Veitna

Algengar spurningar

Af hverju er verið að fara í svona stóra framkvæmd?
Lagnir eru komnar á tíma fyrir endurnýjun og til að þurfa einungis að koma einu sinni og grafa götuna upp þá er allt tekið á sama tíma.

Hvað verður skurðurinn stór?
Þar sem fráveitan liggur djúpt í jörðu þarf skurðurinn að vera djúpur og það þýðir að vinnusvæðið verður einnig breitt til að tryggja öryggi við skurðinn. Gera verður ráð fyrir að ekki sé hægt að aka bíl framhjá vinnusvæðinu.

Verður öll gatan tekin í einu?
Nei. Verkinu verður áfangaskipt og það verður kynnt fyrir íbúum þegar hönnun og verkáætlun eru tilbúnar. Það verður næsta vetur.

Verður gatan malbikuð í áföngum?
Vel verður gengið frá yfirborði jafnóðum, en endanlegur yfirborðsfrágangur verður unninn þegar framkvæmd lýkur.

Af hverju var þetta ekki gert í sumar?
Þar sem upphafleg áætlun gerði ekki ráð fyrir að fráveitulagnir yrðu endurnýjaðar þá þarf að hanna þær. Slíkt tekur tíma og þegar hönnun er tilbúin er langt liðið á sumar, jafnvel haust, með þeirri áhættu að þá takist ekki að klára verkið fyrir veturinn. Slíkar framkvæmdir er ekki hægt að vinna þegar frost er í jörðu og vetrarfærð og þá eru skurðir opnir á meðan og lokað fyrir umferð.

Nú eru nokkur ár síðan átti að malbika Rauðalæk, af hverju hefur þetta tafist?
Ástæðurnar eru margvíslegar og liggja bæði hjá Veitum og Reykjavíkurborg. Það er miður að svona hafi farið og íbúar beðnir velvirðingar á töfunum.

Reykjavíkurborg tilkynnti að gatan yrði malbikuð í sumar, af hverju eru Veitur að breyta því?
Veitur eru fyrirtæki í almannaeigu og ber að fara vel með fjármuni. Það væri óábyrgt af fyrirtækinu að rífa upp nýtt og kostnaðarsamt malbik svo stuttu eftir að það er lagt.

Hvernig getum við aðstoðað þig?