Veitusvæði okkar er að mestu á höfuðborgarsvæðinu en einnig víða á Suður- og Vesturlandi.
Lagnakerfið er ansi stórt, en lagnir og strengir eru alls 9.000 km að lengd, sem samsvarar vegalengdinni frá Reykjavík til Shanghai. Um borg og bý eru ýmis mannvirki á okkar vegum; aðveitustöðvar, dreifistöðvar, rafmagnsskápar, borholur, tankar, dælustöðvar, brunnar, brunahanar, ljósastaurar og hreinsistöðvar.